
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan, IceFish, fagnar því með mikillli ánægju að Íslenski sjávarklasinn er nú kominn í hóp sérstakra samstarfsaðila sýningarinnar.
Íslenski sjávarklasinn tengir frumkvöðla, fyrirtæki og fræðasamfélagið með það að markmiði að knýja áfram nýsköpun í hinu svo kallaða Bláa hagkerfi. Markmið klasans er að hámarka verðmætasköpun úr auðlindum hafsins með því að efla samstarf þvert á atvinnugreinar og tryggja þannig sjálfbæran og arðbæran vöxt til framtíðar.
Þór Sigfússon, stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans og Dr. Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri hans, hafa staðfasta trú á gildi þess að hrinda í framkvæmd áhugaverðum hugmyndum sem snerta auka- og hliðarafurðir sjávarútvegs, ásamt því að hlúa að nýjum tækifærum tengdum hinum fjölbreyttu greinum hafsins.
IceFish er rótgróinn íslenskur viðburður sem sameinar alla þætti atvinnusjávarútvegs, bæði innanlands og á alþjóðavísu. Sýningin fer fram dagana 22.–24. september 2026 í Smáranum/Fífunni í Kópavogi.
IceFish og Íslenski sjávarklasinn munu starfa náið saman að því að útbúa spennandi og nútímalegt efni og innihald fyrir ráðstefnur sýningarinnar, annars vegar hina rómuðu ráðstefnu um fullnýtingu sjávarfangs, „100% Fish for the Profit,” og hins vegar nýja eins dags ráðstefnu um fiskeldi sem nefnist „Aquaculture – Driving Sustainable Growth.”
Jafnframt mun IceFish vinna náið með Íslenska sjávarklasanum og vaxandi alþjóðlegu neti sjávarklasa til að þessa tryggja að fulltrúar klasanna geti sótt sýninguna og ráðstefnurnar og tekið virkan þátt í þeim.
Við undirritun samstarfssamningsins sagði Alexandra Leeper:
„IceFish og ráðstefnur sýningarinnar eru á meðal hápunkta ársins hjá okkur. Viðburðurinn sameinar með einstökum hætti á einum spennandi og kraftmiklum vettvangi hið fjölbreytta samfélag sjávarútvegs, hugmyndafræði „100% Fish”, þ.e. fullnýtingu sjávarfangs, og nú einnig fiskeldið frá öllum heimshornum. Þar getum við miðlað þekkingu okkar og hugmyndum, myndað ný mikilvæg tengsl og unnið að veigamiklum verkefnum í þágu sjálfbærs og arðbærs sjávarútvegs. Það er því afskaplega ánægjulegt að undirrita þennan samstarfssamning og halda áfram að byggja ofan á fyrirtaks samvinnu okkar seinustu árin.“
Sally Wattam, viðburðastjóri IceFish, bætti við:
„Við höfum átt afar gott samstarf við Íslenska sjávarklasann í gegnum tíðina í tengslum við ráðstefnudagskrá okkar. Við erum mjög ánægð með að víkka út þessa samvinnu þannig að hún spannar allan viðburðinn og styrkja með formlegum hætti samstarfið við Íslenska sjávarklasann í því skyni að styðja við sameiginleg markmið okkar um að mæta þörfum og óskum atvinnusjávarútvegs í nútímanum.“
Image:
Right to Left Sally Wattam, Event Director, IceFish, Dr Alexandra Leeper, CEO Iceland Ocean Cluster, Terri Metcalfe, 100% Fish for Profit




