BAADER mun kynna helstu nýjungar sínar í vinnslu sjávarafurða á Icefish 2026.
● Í átt að 100% nýtingu fisks: Samþætt og einingaskipt tækni hjálpar vinnsluaðilum að
nýta meira af hverjum fiski og að skapa aukin verðmæti úr hliðarafurðum.
● Nýsköpun framleidd á Íslandi: Nýja BAADER 189 Pro-vélin er þróuð og framleidd í
starfsstöð BAADER í Kópavogi og byggir á víðkunnri tækni fyrirtækisins við flökun á
hvítfiski.
● Ábyrg vinnsla: Snjallar deyfingar-og hreinlætislausnir við vinnslu sem sameina strangar kröfur um dýravelferð og matvælaöryggi við framleiðslu gæðaafurða.
Á sýningarbás B30 geta gestir kynnt sér samþættan búnað, lausnir og þjónustu, sem
þróuð er til að mæta síbreytilegum kröfum vinnsluaðila, fyrir ólíkar tegundir sjávarafurða
og á öllum stigum virðiskeðjunnar.
Í samræmi við slagorð sitt, „Solutions on Demand“ eða Lausnir samkvæmt óskum, mun
BAADER sýna hvernig náið samstarf við viðskiptavini, staðbundin sérþekking og víðfeðmt
tækniframboð stuðla í heild að sérsniðnum lausnum fyrir mismunandi vinnslukröfur- og
aðstæður.
Kynntar verða tæknilausnir sem þróaðar eru til að bæta gæði afurða og auka skilvirkni,
sjálfbærni og arðsemi, jafnframt að gera vinnsluaðilum kleift að hafa sveigjanleika
gagnvart breyttum framleiðslukröfum.
„Íslenski markaðurinn einkennist af framúrskarandi þekkingu á sjávarafurðum,
eindregnum áhuga á nýsköpun og metnaði til að ná sem mestum verðmætum úr
auðlindinni,“ segir Baldvin Johnsen, framkvæmdastjóri BAADER Iceland. „BAADER 189 Pro
er frábært dæmi um hvernig staðbundin verkfræðiþekking okkar og náið samstarf við
viðskiptavini skapa nýjungar fyrir sjávarútveg heimsins. Vélin er þróuð og framleidd af
teymi okkar í Kópavogi og sameinar traustan tæknilegan grundvöll við þau afköst, skilvirkni
og sveigjanleika sem vinnsluaðilar þarfnast í dag.“
Lausnir hannaðar út frá þörfum viðskiptavina
Einingaskipt vinnslukerfi BAADER gera vinnsluaðilum sjávarafurða kleift að útbúa og
aðlaga starfsemi sína samkvæmt fisktegundum, afkastagetu og þörf fyrir sjálfvirkni.
Sérfræðingar BAADER verða á IceFish til að ræða við gesti um einstaklingsbundin
markmið þeirra í framleiðslu og sýna þeim hvernig samþætt tækni og þjónusta geta stutt
við bæði núverandi starfsemi og framtíðarvöxt.
Lykilþáttur í starfsemi BAADER á Íslandi er að hafa þar til taks öflugt teymi sem vinnur
markvisst að því að veita bæði innlendum og erlendum viðskiptavinum stuðning. Þessi
samtvinnun nálægðar við viðskiptavini og staðbundinnar framleiðslu gerir BAADER Iceland
fært að umbreyta þekkingu á daglegum rekstri viðskiptavina í hagnýtar nýjungar.
BAADER 189 Pro: Íslensk nýsköpun byggð á traustum grunni
Einn af hápunktunum á sýningarbás B30 verður BAADER 189 Pro, nýjasta kynslóð hinnar
þekktu flökunarvélar BAADER fyrir hvítfisk. Vélin var þróuð af BAADER Iceland og er
framleidd í starfsstöð fyrirtækisins í Kópavogi. Háþróuð vinnslugeta BAADER 189 Pro gerir
henni kleift að meðhöndla jafnvel mjúkan fisk af mikilli nákvæmni og með lágmarks sóun.
Þetta hjálpar vinnsluaðilum við að bæta nýtingu hráefnisins og auka arðsemina, jafnframt
því að tryggja stöðuga framleiðslu gæðaafurða.
Dýravelferð og hágæðavörur eiga samleið
Það er óaðskiljanlegur hluti af nýsköpunarstefnu BAADER að sameina kröfur um dýravelferð
við framleiðslu hágæðavöru. Slátrunarkerfin BAADER 101 og BAADER 102, sem byggja á
höggdeyfingu, sýna hvernig snjöll vinnslutækni getur dregið úr streitu fisksins á sama tíma
og hún styður við gæðavottun samkvæmt Ikejime-aðferðinni.
Hver fiskur er mældur fyrir sig, sem gerir kerfunum mögulegt að aðlaga viðeigandi
vinnslubreytur sjálfkrafa. Þetta tryggir varanlega árangursríka deyfingu, eins og
EEG-mælingar staðfesta. Fiskum, sem uppfylla ekki tilskilin skilyrði varðandi stærð, stefnu
eða staðsetningu, er beint ósködduðum til handvirkra vinnslustöðva. Þessi snjallnálgun
sameinar skilvirkni í rekstri við fyllstu kröfur um dýravelferð annars vegar og áreiðanleg
gæði afurða hins vegar.
Næsta kynslóð hreinlætisvænnar vinnslu
Matvælaöryggi verður annar miðlægur þáttur í kynningu BAADER á sýningunni.
Fyrirtækið mun kynna umtalsverðar endurbætur á BAADER 144 Pro-vélinni, þar á meðal
nýja útgáfu af hreinlætishönnun sem er að fullu tilbúin fyrir sjálfvirk CIP-hreinsunarferli
(Clean-in-Place).
Endurtekar, sjálfvirkar hreinsunaraðferðir auðvelda útrýmingu baktería, samanborið við
handvirka hreinsun, og auka samfellu í hreinlæti á milli framleiðsluvakta. Á sama tíma
njóta rekstraraðilar góðs af styttri vinnsluhléum vegna hreinsunar og meiri áreiðanleika í
ferlinu.
BAADER 144 Pro endurspeglar einnig hugmyndafræði fyrirtækisins um einingaskipta
hönnun. Hægt er að raða saman óháðum vinnslueiningum fyrir mismunandi tegundir
laxfiska og mismunandi stig sjálfvirkni, til að viðskiptavinir geti þróað lausnir sem henta
sértækum óskum þeirra.
Í átt að 100% nýtingu fisks
Allt tækniframboð BAADER miðast við framtíðarsýn fyrirtækisins um ábyrga fullnýtingu
hráefnis, undir kjörorðunum „Towards 100% Fish“. Hvort sem um er að ræða nákvæma
slægingu og hágæða flökun, eða skilvirka nýtingu verðmætra hliðarafurða, auðvelda lausnir
BAADER vinnsluaðilum að skapa meiri verðmæti frá upphafi framleiðsluferilsins til enda.
Hægt er að umbreyta hágæða hliðarafurðum í fjölbreytt úrval endurnýjanlegra afurða með
auknu verðmæti, sem stuðlar að betri nýtingu sjávarauðlindarinnar og hringrásarmiðaðri
framleiðsluháttum.
Sérfræðiþekking á Icefish 2026
Ekki aðeins sýnir BAADER á IceFish, heldur mun Nils Rabe, alþjóðlegur sölustjóri
fyrirtækisins, einnig halda tvö erindi á ráðstefnum sýningarinnar:
• Á ráðstefnunni Aquaculture – Driving Sustainable Growth þann 22. september mun hann
fjalla um hvernig dýravelferð og einingaskipt vinnslutækni geta stutt við sjálfbæran vöxt í
fiskeldisiðnaði.
• Á ráðstefnunni 100% Fish for Profit þann 23. september mun hann í erindi sínu, „Enabling
Technology for Full Utilization“, fjalla um hvernig gæðadrifin vinnsla og fullnýting aukaafurða
geta hámarkað verðmæti hráefnis úr sjávarafurðum og stuðlað að sjálfbærri arðsemi.
Hittu BAADER á Icefish 2026
Á sýningarbás B30 mun BAADER kynna hvernig nýsköpun, einingaskipting, matvælaöryggi,
dýravelferð og fullnýting sjávarfangs mætast í samþættum vinnslulausnum. Gestum er
boðið að hitta teymi BAADER og ræða hvernig náið samstarf, svæðisbundin sérþekking og
lausnir sem eru sérsniðnar að þörfum viðskiptavina geta hjálpað þeim til að takast á við
rekstrarlegar áskoranir nútímans, jafnframt því sem sjávarvinnslufyrirtæki eru undirbúin fyrir
þau tækifæri sem framtíðin ber í skauti sér.
Til að hitta Baader og aðra sýnendur á IceFish skaltu sækja aðgangspassann þinn HÉR.




