
Ólöf Helga Jónsdóttir mun stýra umræðum á Aquaculture – Driving Sustainable
Growth.
Ólöf Helga hefur nú verið staðfest sem stjórnandi umræðna á IceFish-
ráðstefnunni Aquaculture – Driving Sustainable Growth í september nk. Ólöf Helga
stýrði nýlega einum lið ráðstefnu Hringborðs sjávar og eldis, Iceland Aquaculture
and Ocean Forum eða IAOF.
Ólöf Helga er framkvæmdastjóri mannauðsmála (CPO) hjá fiskeldisfyrirtækinu
Kaldvík (áður Arnarlax). Hún tók sæti í stjórn Hringborðs sjávar og eldis í október á
síðasta ári og var fundarstjóri á málstofu á ráðstefnu samtakanna í Reykjavík í
síðasta mánuði, sem kallaðist „Íslenska leiðin til vaxtar“. Þá tók hún einnig þátt í
pallborðsumræðum á málstofunni „Fjárfestingar í þrautseigum og sjálfbærum vexti“.
IAOF 2026 var vettvangur fyrir fjárfesta, stefnumótendur, stjórnendur fyrirtækja,
rannsakendur og aðra lykilhagsmunaaðila. Áhersla ráðstefnunnar var á framtíð
fiskeldis, fjármagnsmarkaða og þróun alþjóðlegs sjávarútvegs og
sjávarafurðahagkerfis.
Meðal umfjöllunarefna voru ábyrgur vöxtur, langtímastefna og regluverk, nýsköpun
og fæðuöryggi, fjárfestingar í sjálfbærri framleiðslu sjávarafurða og vaxandi hlutverk
Íslands í alþjóðlegu fiskeldi. Líklegt er að þessi málefni verði einnig áberandi á IceFish-
ráðstefnunni þann 22. September nk.
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, flutti setningarávarp IAOF-
ráðstefnunnar og fjallaði þar um frumvarp ríkisstjórnarinnar um lagareldi, sem verið
hefur til umræðu á Alþingi að undanförnu og mun ef að líkum lætur vera orðið að lögum
áður en IceFish-sýningin hefst í september.
Ráðherrann lagði einnig áherslu á efnahags- og atvinnustefnu stjórnvalda þar sem
fiskeldi er skilgreint sem ein af lykilstoðum sjálfbærs vaxtar á Íslandi, með stuðningi við
byggðaþróun, nýsköpun, útflutning og langtímaverðmætasköpun að leiðarljósi.
Í færslu sem Ólöf Helga birti á netinu skömmu eftir IAOF 2026 sagði hún:
„Ég er afar stolt af því að hafa verið hluti af þessari ráðstefnu og að sitja í stjórninni.
Þótt þar hafi komið fram ótal verðmætar hugmyndir og átt sér stað mikilvægar
umræður, þá er það fyrst og fremst ein tilfinning sem situr eftir hjá mér; ánægja.
Að sjá fólk tengjast, læra hvert af öðru, vinna saman og njóta upplifunarinnar af
einlægni minnir mig á hvers vegna viðburðir sem þessi skipta svo miklu máli. Það
sem stóð einnig upp úr var ástríða þeirra sem komu að ráðstefnunni og sameiginlegur
vilji til að stuðla að vexti greinarinnar – saman. “
Nánari upplýsingar og skráning á ráðstefnuna Aquaculture – Driving Sustainable Growth
má finna á heimasíðu IceFish Conferences.




