
Matís stóð á sumarmánuðum fyrir spennandi rannsóknarverkefni, í samstarfi við Íslenska sjávarklasann, á áhrifum lífkola á jarðveg og plöntuvöxt. Nýsköpunarsjóður námsmanna styrkti verkefnið, en það er hluti af stærra rannsókn á möguleikum lífkola til að bæta jarðveg. Íslenski sjávarklasinn leiðir verkefnið sem sem ber heitið Jarðvegsbætandi lífefni.
Aldís Agla Sigurðardóttir, nemi í matvælafræði, hafði umsjón með daglegri framkvæmd tilraunarinnar í sumar. Hún fylgdist m.a. með vöxt og vökvun plantna og hélt utan um gögn, ásamt því að ganga frá niðurstöðum í lokaskýrslu. Aldís Agla hafði þetta að segja um verkefnið:
„Í námi mínu í matvælafræði vaknaði áhugi minn á sjálfbærni og hvernig rannsóknir stuðla að þróun sjáflbærni og nýsköpunar í matvælaframleiðslu. Þegar ég kynntist verkefninu Lífkol: brú milli fiskeldis og landbúnaðar sá ég kjörið tækifæri til að tengja saman þessi áhugasvið.“
Tilraunin fór fram á þaki starfstöðvar Matís við Vínlandsleið, og voru þar ræktaðar kálplöntur í mismunandi blöndum af mold og lífkolum. Meðal annars voru notuð lífkol unnin úr fiskeldisseyru. Markmiðið var að sjá hvort þessi óhefðbundnu lífkol hefðu sambærileg eða jafnvel betri áhrif en hefðbundin lífkol úr viðarafgöngum.
„Það kom mér á óvart hve breytileg áhrifin geta verið eftir lífkolum framleiddum úr mismunandi hráefni. Greinilegur munur virðist vera á lífkolum úr fiskeldismykju úr saltvatni annars vegar og ferskvatni hins vegar. Það var einnig áhugavert að sjá áhrif mismunandi styrkleika, þ.e. hlutfalls lífkola í moldinni og hvernig það hafði áhrif á plöntuvöxt,“ segir Ásdís.
Með þessu verkefni er stigið mikilvægt skref í átt að sjálfbærri nýtingu lífrænna aukaafurða og betri nýtingu jarðvegs. Niðurstöðurnar gætu haft jákvæð áhrif á hvernig við hugsum um úrgangsstrauma og landbúnað í framtíðinni, og hver veit nema lífkol úr fiskeldismykju verði hluti af lausninni. Niðurstöðurnar nýtast einnig fyrir evrópuverkefnið OCCAM sem fór af stað í maí 2025.
„Reynslan hefur verið mjög lærdómsrík og skemmtileg. Ég fékk að vinna sjálfstætt, taka þátt í ákvörðunum og fá uppbyggilega gagnrýni. Ég lærði mikið um alla þætti rannsóknarvinnu, frá tilraunasetningu til gagnagreiningar, og efldi sjálfsöryggi mitt til að starfa innan þessa rannsóknarsviðs,“ segir Ásdís einnig.
Niðurstöður verkefnisins verða birtar í skýrslu seinna í haust.




