KÓPAVOGUR, ICELAND

22-24 SEPTEMBER 2026

KÓPAVOGUR, ICELAND

ICEFISH-APPIÐ

IceFish-appið auðveldar hinu alþjóðlegu samfélagi fólks í kringum IceFish-sýninguna að tengjast, skipuleggja fundi, sækja ráðstefnur og skiptast á tengiliðaupplýsingum.

Það einfaldar einnig innritunarferlið að hlaða niður IceFish-appinu, styttir biðtíma og tryggir hnökralausan aðgang að sýningunni.

Með því að hafa allar nauðsynlegar upplýsingar um viðburði á IceFish aðgengilegar á einum þægilegum stað í farsímanum þínum geturðu auðveldlega skipulagt heimsóknina á sýninguna, fylgst með hvað ber hæst og nýtt tímann til hins ýtrasta.

Aðgengilegt alls staðar:

Frábær vettvangur til að kynna vörumerkið þitt fyrir leiðtogum í greininni frá öllum heimshornum.

Card image
YFIRLITSKORT AF SÝNINGARSVÆÐINU
Notaðu yfirlitskortið til að finna leiðina að þeim bás sem þú vilt skoða, að ráðstefnusvæði eða að kynningarsvæði.
Card image
SKÖNNUN Á AÐGÖNGUPASSA
Ókeypis og þægileg leið fyrir sýnendur og gesti til að safna tengiliðum og afla vænlegra viðskiptavina. Gestir/sýnendur skanna passa annarra gesta/sýnenda til að tengjast - stafrænt handaband! Frábær aðferð fyrir sýnendur og gesti til að safna tengiliðum og koma á samskiptum.
Card image
AÐ AFLA SÉR VIÐSKIPTAVINA
Sýnendur hafa þann hentuga valkost að geta sett alla tengiliði/hugsanlega viðskiptavini í töflureikni (spreadsheet) að sýningunni lokinni.
Card image
LISTI YFIR SÝNENDUR
Leitaðu að þeim sýnendum sem þú vilt tengjast á IceFish. Leitaðu eftir heiti fyrirtækis eða sérsviði/áhugasviði.
Card image
DAGSKRÁ VIÐBURÐA
Skoðaðu hina frábæru viðburðadagskrá okkar! Allt frá áhugaverðum vinnustofum og fróðlegum pallborðsumræðum til vörukynninga í beinni og gagnvirkra viðburða. Fylgstu með hvað er glænýtt á dagskránni og njóttu bestu mögulegu upplifunar af sýningunni.
Card image
BÓKAÐU SÆTI Á RÁÐSTEFNURNAR
Tryggðu þér sæti á ráðstefnunum. Sætaframboð er takmarkað og með því að bóka fyrirfram tryggðirðu að þú missir ekki af þeirri ráðstefnu sem vekur mestan áhuga þinn.

Skráðu þig eða innritaðu þig á Icefish.is til að fá nýjustu fréttir/upplýsingar á réttum tíma, sérsniðnar ábendingar um áhugaverða hluti á sýningunni, og njóta forgangs að ákveðnum viðburðum og tækifærum til tengslamyndunar.