NÝTTU ÞÉR HEIMSÓKNINA TIL FULLNUSTU
VERIÐ VEL UNDIRBÚIN FYRIR ICEFISH
ÞÚ GETUR SÉRSNIÐIÐ ÞÍNA UPPLIFUN
UPPFÆRÐU NOTENDASÍÐUNA ÞÍNA
Þremur til fjórum vikum fyrir sýninguna skaltu fara inn á notendasíðuna þína og bæta við upplýsingum um áhugasvið þitt. Gættu þess að hafa upplýsingarnar sem ítarlegastar til að tryggja að þú tengist þeim aðilum sem henta þér best.
Frekari upplýsingar
RANNSAKAÐU ALLT FYRIRFRAM
SKOÐAÐU SÝNENDUR Á NETINU
Skoðaðu listann yfir sýnendur til að sigta út lykilfyrirtæki á þínu áhugasviði. Bættu þeim við notendasíðuna þína, sem gerir þér kleift að senda þeim skilaboð beint og skipuleggja fundi.
Frekari upplýsingar
FYLLTU DAGATALIÐ
BÓKAÐU FUNDI FYRIRFRAM
Bókaðu fundi fyrirfram á Netinu með þvi´að senda skilaboð til sýnenda og raðaðu þannig saman persónulegri dagskrá fyrir hvern sýningardag. Þannig geturðu hámarkað tímanýtingu þína á IceFish.
Frekari upplýsingar
EKKI MISSA AF NEINU
SKRÁÐU HJÁ ÞÉR VIÐBURÐI, KYNNINGAR OG FRUMSÝNINGAR Á VÖRUM
Ekki láta neitt fram hjá þér fara á dagskrá IceFish 2026, sýnikennslu, afhjúpun á nýjum vörum, skipulagða tengslafundi og ráðstefnu-dagskrána.
Frekari upplýsingarVERTU VIRKUR Í SAMFÉLAGINU
Ekki gleyma að fylgja og deila fréttum frá opinberu samfélagsmiðlum IceFish! Bættu við smellitáknum (social links). Til að sýna að þú sért að heimsækja IceFish geturðu bætt við borða/merki með þvi að fara inn á Supporter Kit hjá okkur.
Frekari upplýsingarMEÐAN Á SÝNINGUNNI STENDUR
HALTU ÞIG Á RÉTTRI BRAUT
HALTU ÞIG VIÐ ÞÍNA ÁÆTLUN
Skoðaðu áætlunina þína á IceFish-appinu eða á vefsíðunni til að mæta á fyrirfram bókaða fundi. Þetta er í rauntíma þannig að þú getur bætt við þá eftir þörfum meðan á sýningunni stendur.
Frekari upplýsingarTAKTU ÞÁTT Í FJÖRINU Á STAÐNUM
Mættu á viðskiptafundi, frumsýningar á vörum og viðburði sem þú hefur sett á áætlunina þína til að fá dýrmæta innsýn frá sérfræðingum í faginu og styrkja tengslanetið.
Frekari upplýsingar
OPNAÐU ICEFISH UPP Á GÁTT
UPPLIFÐU ALLT SAMAN
Notfærðu þér klasa skyldra aðila, sýningarskála og gönguleiðir til að tengjast ákveðnum greinum og geirum. Notaðu pásur og lausar stundir til að fara í könnunarleiðangur um sýninguna og hlaða batteríin á matsölusvæðinu.
Frekari upplýsingarEFTIR ICEFISH
HALTU SAMTALINU GANGANDI
Haltu samtalinu áfram með netspjallinu sem þú hefur aðgang að á gesta-notendasíðunni þinni. Opið og aðgengilegt 365 daga á ári!
Frekari upplýsingarRÆKTAÐU VIÐSKIPTATENGILIÐI
Skráðu hjá þér minnispunkta frá fundunum sem þú áttir meðan á sýningunni stóð. Þú getur hlaðið þeim upp á notendasíðuna þína til að meta þá betur og á auðveldari hátt eftir að sýningunni lýkur, og tryggja þannig að þú getir ræktað alla nýja viðskiptatengiliði og svarað fyrirspurnum.
Frekari upplýsingarKOMDU ÞÍNUM SJÓNARMIÐUM Á FRAMFÆRI
Hafðu augun opin fyrir þjónustukönnun IceFish. Könnunin gegnir lykilhlutverki í að tryggja að þín sjónarmið heyrist svo að við getum haldið áfram að betrumbæta sýninguna.
Frekari upplýsingar