KÓPAVOGUR, ICELAND

12-14 SEPTEMBER 2028

KÓPAVOGUR, ICELAND

THE KNOWLEDGE BOX

NÝTT Á ICEFISH 2026

The Knowledge Box er glænýtt kynningarrými á IceFish 2026, hannað til að sýna nýjustu nýjungar, vörur, þjónustu og sérþekkingu í atvinnulífinu frá öllum sjávarútvegs-og fiskeldisgeiranum.

Þessi afstúkaði 40 sæta salur er vel staðsettur á milli veitingarýmisins og nýju Miðstöðvar fiskeldis og gefur gestum kost á að kynnast því sem fremstu sýnendur og sérfræðingar í greininni hafa fram að færa á sýningartímanum.

Nýjasta tækni á sviði svo kallaðra „hljóðlausra ráðstefna” býður þátttakendum upp á að njóta hágæða hljóðs án truflunar af klið/glym frá sjálfri sýningunni.

HVAÐ ER Í BOÐI?


Á dagskránni er fjölbreytt úrval ókeypis viðburða, þar á meðal:

  • Kynningar á nýjum vörum og þjónustu
  • Sýnikennsla
  • Tæknilegar kynningar
  • Reynslusögur úr atvinnulífinu
  • Innsýn í atvinnuveiðar og fiskeldi
  • Það helsta í nýsköpun og tækni

Ekki þarf að skrá sig fyrirfram á viðburðina, bara að tylla sér, setja á sig heyrnartól og njóta kynningarinnar.

KYNNTU FYRIRTÆKIÐ ÞITT


Ert þú að sýna á IceFish 2026 og kynna nýja vöru, þjónustu eða nýjung?

Bókaðu kynningartíma í The Knowledge Box og kynntu fyrirtækið þitt fyrir markhópi sérfræðinga í sjávarútvegi.


Kynningin þín mun njóta góðs af:

  • Sérstökum kynningarvettvangi
  • Fyrsta flokks hljóð-og myndbúnaði
  • Heyrnartólum fyrir hljóðlausar ráðstefnur
  • Kynningu í gegnum vefsíðu og raffréttir IceFish
  • Að vera hluti af opinberri dagskrá og kynningu fyrir fjölmiðla (þar sem við á)

KYNNINGARDAGSKRÁ

Þriðjudagur 22. september

  • 11:10-11:40 | Securitas | KYNNING
  • 11:50–12:20 | Turing AS | KYNNING
  • 12:30–13:00 | WAGNER Fire Safety AS | KYNNING
  • 13:10–13:40 | MEST | ERINDI
  • 14:30–15:00 | MoMoi | KYNNING


Miðvikudagur 23. september

  • 10:30–11:00 | NP Innovation | ERINDI
  • 11:10–11:40 | FishFacts (Invitation only) | NÝ VARA KYNNT
  • 11:50-12:20 | Searas AS | ERINDI
  • 13:50–14:20 | EquaFish | ERINDI
  • 14:30–15:40 | Thyborøn Trawldoor A/S | ERINDI


Fimmtudagur 24. september

  • 11:50-12:20 | Securitas | KYNNING
  • 12:30–13:00 | CatchWise | NÝ VARA KYNNT


Nánari upplýsingar um viðburði á IceFish má finna á dagskrársíðunni.

BÓKUN

Kynningartímum er úthlutað eftir reglunni „fyrstur kemur, fyrstur fær”, svo að við mælum með að bóka snemma til að tryggja þér þinn óskadag og óskatíma.