FÁÐU SEM MEST ÚT ÚR ÞVÍ AÐ SÝNA

UNDIRBÚÐU ÞIG FYRIR ICEFISH

HÁMARKAÐU SKRÁNINGUNA

Hámarkaðu notagildi sýnenda-skráningar þinnar í "Exhibitor List" til að laða að viðskiptavini: Því ítarlegri sem notendasíðan þín er, því líklegra er að þú vekir athygli viðskiptavina. Gefðu sérstaklega gaum að flokkavalinu hjá þér því að þessir flokkar eru notaðir í leitarsíum.

Frekari upplýsingar

HÁMARKAÐU
SÝNILEIKANN

Hámarkaðu sýnileikann og skerðu þig úr hópnum meeð því að nýta þér tilboð okkar um styrktaraðild, Premium-skráningu, stafrænt val og kostun - veldi þá möguleika sem henta best þínum þörfum.

Frekari upplýsingar

VERTU VIRKUR Í SAMFÉLAGINU

Ef þú ert sýningar- eða styrktaraðili IceFish 2026 skaltu kynna þér þau verkfæri sem bjóðast í stuðningspakkanum okkar til að vekja athygli á þáttöku þinni á sýningunni. Gakktu úr skugga um að þú fylgir og deilir efni frá öllum þeim samfélagsmiðlum sem IceFish starfrækir.

Frekari upplýsingar

FYLLTU DAGBÓKINA
BÓKAÐU FUNDI FYRIRFRAM

Sendu fundarbeiðnir til skráðra gesta og sýnenda til að skipuleggja sýningardagatalið fyrirfram.

Frekari upplýsingar

MEÐAN Á ICEFISH STENDUR

HALTU ÞIG Á RÉTTRI BRAUT
HALTU ÞIG VIÐ ÞÍNA ÁÆTLUN

Skoðaðu þína áætlun á IceFish-appinu eða á vefsíðunni til að mæta á fundi sem bókaðir voru fyrirfram. Þetta er í rauntíma svo að þú getur bætt við nýjum meðan á sýningunni stendur.

Frekari upplýsingar

SKANNAÐU SÝNINGARPASSA VIÐSKIPTAVINA

Skannaðu sýningarpassa gesta sem heimsækja básinn þinn. Þessar upplýsingar um viðskiptatengiliði verða aðgengilegar á notendasíðunni þinni og hægt að hlaða þeim niður sem Excel-skjali.

Frekari upplýsingar

OPNAÐU ICEFISH UPP Á GÁTT
UPPLIFÐU ALLT SAMAN

Mættu á viðskiptafundi, vörufrumsýningar og viðburði sem þú hefur merkt við á dagskránni hjá þér, til að öðlast dýrmæta innsýn frá sérfræðingum í greininni og styrkja tengslin við fagfólk á þínu sviði.

Frekari upplýsingar

EFTIR ICEFISH

HALTU SAMTALINU GANGANDI

Haltu samtalinu við viðskiptavini gangandi með því að notfæra þér skilaboðakerfið sem finna má á notendasíðunni þinni. Opið og aðgengilegt 365 daga á ári!

Frekari upplýsingar

LEGGÐU MAT Á GÖGNIN ÞÍN

Þú skalt hlaða niður öllum gögnum um gesti á básnum þínum fyrir eftirfylgni að sýningu lokinni. Leggðu mat á fundina sem bókaðir voru fyrirfram til að auðvelda úttekt á þeim að sýningu lokinni.

Frekari upplýsingar

KOMDU ÞÍNUM SJÓNARMIÐUM Á FRAMFÆRI

Vertu vakandi fyrir þjónustukönnun IceFish. Könnunin gegnir lykilhlutverki við að tryggja að sjónarmið þín berist okkur, svo að við getum haldið áfram að þróa og betrumbæta sýninguna í samræmi við kröfur og óskir sýnenda.

Frekari upplýsingar