KÓPAVOGUR, ICELAND

12-14 SEPTEMBER 2028

KÓPAVOGUR, ICELAND

AF HVERJU AÐ SÝNA?

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan hefur margsannað sig sem öflugur vettvangur til að skapa ný viðskiptatengsl og styrkja þau sem fyrir eru. Sýningin laðar að sér alþjóðlegan hóp gesta frá yfir 60 þjóðlöndum, að mestu leyti fagfólk og sérfræðingar á sviði atvinnuveiða, fiskeldis og vinnslu sjávarafurða, en einnig í auknum mæli á sviði nýsköpunar og framleiðslu hliðar- og virðisaukandi afurða í sjávarútvegi.

IceFish laðar að sér fjölmenni úr öllum heimshornum þá þrjá daga sem hún stendur yfir. Gæði og fjölbreytni sýningarinnar er aðdráttarafl fyrir fólk sem stendur við stjórnvölinn í sjávarútvegi og tengdum greinum. Sýningin veitir fyrirtækjum tækifæri til að þróa fjölþætt alþjóðleg tengsl á einum stað.


Sjávarútvegur og fiskeldi eru burðarstoðir íslenska hagkerfisins, þar sem fiskur og fiskafurðir mynda 35% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin, sem er stærsti einstaki viðskiptaviðburður á Íslandi, sameinar alla greinina undir einu þaki, með stuðningi helstu samtaka í faginu.


Að sýna á IceFish hefur ótal kosti í för með sér. Íslenski flotinn, sem telur 1.561 skráð fiskiskip, er í stöðugri nútímavæðingu, sem myndar stöðuga eftirspurn eftir nýrri tækni, búnaði og þjónustu. Ísland er einnig brautryðjandi í sjálfbærni og nýtingu sjávarafurða, eins og sést á 100% Fish verkefni Íslenska sjávarklasans. Tilgangur verkefnisins, sem er í samstarfi við rannsóknarstofnanir og einkafyrirtæki, er að ákvarða hvernig hægt er að endurnýta og þróa aukaafurðir úr íslenskum sjávarútvegi á sem bestan og hugkvæmastan átt. Íslenskur sjávarútvegur veltir um 2 milljörðum Bandaríkjadala, og býður upp á mikilvæg viðskiptatækifæri á Íslandi og annars staðar í heiminum.


Sýnendur njóta einnig góðs af því að faðmur IceFish teygir miklu lengra og víðar en sýningin ein segir til um, m.a. fyrir tilstilli fjöltæknilegrar útbreiðslu tímaritsins World Fishing & Aquaculture, sem nær til tæplega 27 þúsund sérfræðinga í sjávarútvegi um heim allan. Hittu áhugasama kaupendur úr allri virðiskeðjunni í sjávarútvegi og fiskeldi á líflegu markaðstorgi sem er í fararbroddi á heimsvísu. Sýndu nýjungar, byggðu upp samstarfið og stækkaðu umfang þitt á sviði fiskveiða og fiskeldis.

TÖLULEGAR UPPLÝSINGAR UM ICEFISH 2024

IceFish teygir sig vítt og breitt í sjávarútvegi

IceFish teygir sig um víða veröld

60
ÞÁTTTÖKUÞJÓÐIR
10 057
RÍFLEGA 10 ÞÚSUND GESTIR
247
SÝNENDUR
5
RÁÐSTEFNULIÐIR
3
SAMSTARFS-SAMTÖK

VITNISBURÐIR

Hampiðjan Iceland
Haraldur Árnason Sales & Marketing Director
"Having been exhibiting at IceFish since 1984, for Hampidjan, IceFish is the number one exhibition. It is always well organised with new and current customers attending. We are looking forward to the next exhibition and to meeting all our customers old and new, see you all there!"
Marel Iceland
"The Icelandic Fisheries Exhibition has, from the first exhibition in 1984, been a major meeting point for Marel and the Icelandic seafood industry. The Icelandic Fisheries Exhibition gives us the unique opportunity to present our products to the customers that are closest to our origins and our headquarters in Iceland."
Vónin
Bogi Nón Marketing Manager
"For many years, we have been proud to participate in the Icelandic Fisheries Exhibition. It continues to be a vital event for us, allowing us to effectively reach the Icelandic market with our fishing gear and aquaculture equipment. This exhibition provides an excellent platform to connect with key industry players, exchange ideas, and showcase our latest innovations. The quality of interactions and business opportunities at the event is consistently high, making it an essential part of our annual strategy. We look forward to exhibiting again at future editions."