DAGSKRÁ ICEFISH 2026
Þriðjudagurinn 22. september
Ráðstefna IceFish: Aquaculture – Driving Sustainable Growth
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: 10:00 - 16:00
Ráðstefnudagskrá IceFish stækkar í ár. Á meðal nýjunga er eins dags ráðstefna sem fjallar um fiskeldi, Aquaculture – Driving Sustainable Growth. Ráðstefnan leiðir saman íslenska og alþjóðlega leiðtoga í greininni til að kynna og miðla þekkingu sinni á tækninýjungum, sjálfbærum starfshættum og spennandi aðferðum til að knýja áfram ábyrgan vöxt. Frekari upplýsingar má fá hér.
Opnunarhátíð
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: Á eftir að staðfesta
Fyrirtækjastefnumót
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: 12:00 - 16:00
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin
Staðsetning: Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur, Ísland
Tími: 18:30
Verðlaunin eru veitt til að heiðra framúrskarandi árangur á sviði sjávarútvegs, fiskeldis og framleiðslu sjávarrétta. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1999 og hafa fyrir löngu öðlast virðingu og sess sem mælikvarði á afburða góða frammistöðu innan þessara greina.
Miðvikudagurinn 23. september
Ráðstefna IceFish: 100% Fish for Profit (dagur 1)
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: 08:30 - 17:00
Ráðstefnan er byggð á grunni vinsællar ráðstefnu sem kallaðist Fish Waste for Profit. Á ráðstefnunni verður sjónum beint að leiðum til að auka verðmæti sjávarfangs með fullnýtingu aflans og breyta því hráefni sem áður var fargað í dýrmæta markaðsvöru. Ráðstefnan leiðir saman leiðtoga í sjávarútvegi, fiskeldi, vinnslu og virðiskeðjunni í breiðum skilningi, í því skyni að kynna það sem hæst ber í nýsköpun, öðlast innsýn í spennandi möguleika í greininni og tengjast lykilhagsmunaaðilum. Frekari upplýsingar má fá hér.
Fyrirtækjastefnumót
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: 12:00 - 16:00
Fimmtudagurinn 24. September
Ráðstefna IceFish: 100% Fish for Profit (dagur 2)
Staðsetning: IceFish, Smárinn/Fífan Dalsmári 5, 201 Kópavogur, Ísland
Tími: 08:30 - 13:00
