AF HVERJU AÐ MÆTA?

IceFish hefur í áranna rás þróast í að vera alþjóðleg miðstöð fyrir sjávarútveginn og endurspeglar í senn efnahagslega sigurgöngu íslensks sjávarútvegs og áframhaldandi sókn hans á ótal sviðum. IceFish býður upp á rómaðan og margsannaðan vettvang til að skapa ný viðskiptatengsl og rækta þau tengsl sem eru nú þegar til staðar. Á IceFish geta allir kynnt sér það nýjasta og áhugaverðasta í heiminum á sviði atvinnuveiða og vinnslu sjávarafurða, ásamt hinni hröðu þróun á sviði fiskeldis.


IceFish-sýningin býður upp á alhliða upplifun, þar á meðal afhjúpun á nýjustu hátæknivörum og sýnikennslu. Gestir geta tekið þátt í verklegum kynningum, gagnvirkum sýningum og ítarlegum umræðum við sérfræðinga, og fá þannig dýrmæta innsýn í glænýjar tæknilausnir og hagkvæmustu verktæknina. IceFish býður þar að auki upp á víðtækar alþjóðlegar tengingar og einstaka aðstöðu, sem gerir hana að framúrskarandi og ómissandi viðburði fyrir alla þá sem tengjast sjávarútvegi á heimsvísu. IceFish laðar að sér sýnendur og gesti frá 60 mismunandi þjóðríkjum.
Card image
Dagskrá ráðstefnu
Dagskrárliðir og viðskiptafundir í tengslum við IceFish-ráðstefnurnar fara fram þá þrjá daga sem Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýninging 2026 stendur yfir. Ráðstefnurnar spanna margvísleg umfjöllunarefni á sviði atvinnuveiða, fiskeldis og sjávarréttaframleiðslu, og innihalda erindi og kynningar frá samstarfsaðilum okkar.
Frekari upplýsingar
Card image
Sýningarskálar
Sýningarskálar IceFish eru afmörkuð svæði innan sýningarinnar þar sem finna má klasa af básum á vegum aðila sem eiga sameiginlegan uppruna, samstarfsvettvang eða atvinnugeira.
Card image
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin
Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru fyrst veitt árið 1999 og hafa fyrir löngu öðlast virðingarsess á sínu sviði. Verðlaunin eru gríðarlega eftirsótt og þykja svo sannarlega mikill heiður fyrir vinningshafa, sem nýta sér vegsemdina sem þeim fylgir til að kynna fyrirtæki sín og framleiðslu um víða veröld.
Frekari upplýsingar