UM ICEFISH

60
ÞÁTTTÖKUÞJÓÐIR
10 057
RÍFLEGA 10 ÞÚSUND GESTIR
247
SÝNENDUR
5
RÁÐSTEFNULIÐIR
10
SAMSTARFS-SAMTÖK

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan (IceFish) er sýning með langa og farsæla sögu og nýtur mikillar virðingar. Hún var fyrst haldin 1984 og hefur vaxið og dafnað allar götur síðan. Sýningin er traustur og viðurkenndur vettvangur til að skapa ný viðskiptatengsl og kynnast því sem hæst ber í sjávarútvegi, veiðum og vinnslu, framförum og framleiðslu virðisaukandi hliðarafurða, ásamt hraðri þróun í fiskeldi.


IceFish verður haldin í fimmtánda skipti í Kópavogi dagana 22.-24. september 2026. IceFish 2026 tekur mið af þeirri miklu velgengni sem IceFish 2024 naut og býður upp á kraftmikla blöndu af nýjungum, fræðandi og áhugaverðum ráðstefnum, fyrirtækja-stefnumótum, nýsköpun og skemmtilegum kynningum á nýjum og spennandi vörum. Að ógleymdum hinum virtu Íslensku sjávarútvegsverðlaunum, sem heiðra framúrskarandi fyrirtæki og einstaklinga á öllum sviðum sjávarútvegs.