FYRIRTÆKJASTEFNUMÓT - VIÐSKIPTI MILLI FYRIRTÆKJA (B2B)

IceFish 2026 býður enn á ný upp á fyrirtækjastefnumót fyrir B2B

„Maður á mann“ viðskiptafundir eru sívinsælir á IceFIsh og á sýningunni 2024 voru rétt tæplega 100 slíkir fundir haldnir með frábærum árangri.

Enterprise Europe Network á Íslandi er bakhjarl fyrirtækjastefnumótanna, sem eru skipulögð af Rannís, Rannsóknarmiðstöð Íslands.

Það er ÓKEYPIS fyrir bæði sýnendur og gesti að skrá sig og taka þátt.

Skráning hefst í ágúst 2026.

Af hverju að taka þátt?

Fyrirtækjastefnumótin veita einstakt tækifæri til að mynda tengsl á milli landa og heimsálfa með því að kynnast nýjum og hugsanlegum viðskiptaaðila. Með því að taka þátt:

·     Fær aðild þín að sýningunni aukið vægi.

·     Færðu aðgang að fjölmörgum fyrirtækjum og hagsmunaaðilum sem henta þínum þörfum.

·     Færðu markvissa 20 mínútna fundi með hagsmunaaðilum sem hægt er að velja og staðfesta fyrirfram.


Hverjir taka þátt?
Fyrirtækjastefnumótin eru ætluð fyrirtækjum, sjávarklösum og alþjóðlegu valdafólki í sjávarútvegi á heimsvísu, jafnt sem hagsmunaaðilum í rannsóknum og nýsköpun á öllum sviðum sjávarútvegs, hvort sem um er að ræða atvinnuveiðar, fiskeldi, vinnslu, skipaflutninga, markaðssetningu eða dreifingu, og auðvitað fjölda annarra.


Hvernig tekur maður þátt?

Sýnendur og gestir á IceFish geta byrjað að bóka fundi um leið og B2B-skráningin hefst í júlí 2026.

 

Til að fá frekari upplýsingar skaltu hafa samband við:

Brynja Jónsdóttir

Sérfræðingur | Enterprise Europe Network

een@een.is


Text editor image