Ísland
1 Meðsýnendur(s)
HD er eitt stærsta iðn- og tæknifyrirtæki landsins og leiðandi á sviði málmtækni, stálsmíði, vélbúnaðar og tækniþjónustu. Fyrirtækið þjónustar sjávarútveg, fiskeldi, orkuiðnað og annan íslenskan iðnað með sérhæfðum lausnum sem styðja við öruggan og hagkvæman rekstur.
HD býður upp á heildstæða þjónustu sem spannar allt frá ráðgjöf, þarfagreiningu og hönnun til smíði, uppsetningar, viðhalds og eftirfylgni. Meðal þjónustusviða eru stál- og vélsmíði, dælur og lagnakerfi, ástandsgreining og sívöktun vélbúnaðar með gervigreindarlausnum, viðhald og endurbygging mikilvægs vélbúnaðar, auk sölu á búnaði og varahlutum.
Fyrirtækið byggir á yfir 25 ára reynslu og öflugri sérþekkingu sem varð til við sameiningu Hamars ehf., Deilis tækniþjónustu, NDT ehf. og Véla ehf. Í dag er HD traustur samstarfsaðili fyrirtækja um allt land sem leita að áreiðanlegum og nýstárlegum iðn- og tækniþjónustulausnum.
See main entry under HD ehf.