Ísland
1 Meðsýnendur(s)
Prentmet Oddi er stærsti framleiðandi landsins á kartonumbúðum og vinnur með mörgum öflugustu umbúðaframleiðanda Evrópu á borð við Stora Enso og Mondi Group til að veita fyrirtækinu þínu heildarlausnir á sviði umbúða. Hjá félaginu starfa yfir 70 fagmenn sem leggja mikið upp úr gæðum, áreiðanleika og framúrskarandi þjónustu. Félagið er með höfuðstöðvar í Reykjavík og útibú á Akureyri og Selfossi. Samtals starfar félagið í 9.000fm húsnæði.
Efniskaup er samstarfsaðili félagsins og verður á sama bás. Félagið er ört vaxandi og er nú þegar farið að þjónusta mörg kröfuhörðustu sjávarútvegsfyrirtæki landsins á sviði hreinlætislausna. Félagið býður upp á framúrskarandi þjónustu og hágæða lausnir frá leiðandi evrópskum framleiðendum á borð við Stockmeier Group og Scanio Systems.
Efniskaup – Öflugt og ört vaxandi fyrirtæki í hreinlætis- og íblöndunarefnum
Efniskaup, stofnað í september 2025, er nýtt og ört stækkandi fyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinlætisefnum, sýrum, íblöndunarefnum, hreinlætisáhöldum, dælum, vélum og búnaði fyrir matvælavinnslur og framleiðslufyrirtæki. Frá stofnun hafa fjöldi viðskiptavina fært sig yfir til Efniskaupa, enda hafa vörurnar reynst áreiðanlegar, virkar og hagkvæmar í notkun.
Reynsla og þjónusta
Innan fyrirtækisins er yfir 70 ára sameiginleg reynsla, sem tryggir fagmennsku, öryggi og sterka þekkingu á þörfum matvælaiðnaðarins. Við leggjum mikla áherslu á persónulega þjónustu, faglega ráðgjöf og náið samstarf við viðskiptavini. Markmiðið er að finna hagkvæmar, öruggar og skilvirkar lausnir sem henta hverjum rekstri.
Starfsemi á Íslandi og í Færeyjum
Efniskaup starfar á Íslandi og er einnig með söluaðila í Færeyjum, sem tryggir öfluga þjónustu og stöðuga dreifingu á báðum mörkuðum.
Sterkir og áreiðanlegir birgjar
Efniskaup er í samstarfi við Stockmeier, einn stærsta og virtasta efnaframleiðanda í heiminum. Við bjóðum einnig upp á endingargóð og öflug þrifaáhöld frá Scanio Systems, ásamt fleiri sterkum og traustum birgjum sem tryggja gæði og stöðugleika í vöruframboði.