
Alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækið AquaBio Tech Group mun sýna á IceFish 2026 í hinni nýju
Miðstöð fiskeldis. Einnig mun George D Mantas, sem stýrir viðskiptaþróun hjá fyrirtækinu,
halda erindi í fyrri hluta IceFish-ráðstefnunnar um fiskeldi, þar sem fjallað verður um þá
fjölbreyttu tækni sem mun styrkja greinina bæði í nútíð og framtíð.
Höfuðstöðvar AquaBioTech Group eru staðsettar á Möltu í Miðjarðarhafinu, en fyrirtækið
starfar um allan heim og teygja verkefni þess og viðskiptavinir sig til 55 þjóðlanda.
Fyrirtækið tekur að sér fjölbreytt verkefni er varða fiskeldi, fiskveiðar og umhverfi
haf-og vatnasvæða í gegnum svæðisskrifstofur sínar og valda samstarfsaðila um víða veröld.
Stærsti hluti af starfi fyrirtækisins tengist sjávar- og vatnsumhverfi og nær m.a. til þróunar
fiskeldis, markaðssrannsókna, upplýsingasöfnunar, mats á hagkvæmni verkefna, fjáröflunar,
verkefnastjórnunar, útvegunar tæknilausna, tækjastuðnings og þjálfunar.
AquaBioTech Group hefur m.a. þróað nokkur mjög skilvirk og hagkvæm endurvinnslukerfi
fyrir fiskeldi (RAS). Hægt er að nota þessi kerfi í klakstöðvum, kynbótastarfsemi,
fiskeldarannsóknum og fiskeldisstöðvum. Um er að ræða mjög sjálfbæra nálgun sem byggir á
vatns- og vökvaræktunarkerfum.
RAS-kerfið býður upp á hönnunar- og verkfræðiþjónustu fyrir endurvinnslu í fiskeldisstöðvum,
bæði fyrir rannsóknir og sjálfa framleiðsluna. Hönnunar- og verkfræðideild samstæðunnar
sérhæfir sig í nýjustu og skilvirkustu tækni sem völ er á, og teymi verkfræðinga og arkitekta
getur sérsniðið verkefni samkvæmt ítarlegum óskum viðskiptavina. Þannig getur fyrirtækið stutt
við starfsemi viðskiptavina sinna frá byrjun til enda, með inniföldum öllum tæknilegum og
líffræðilegum þáttum sem þörf krefst.
ABT Innovia býður upp á rannsóknarþjónustu til að styðja við þróun bóluefna, sérvirknifóðurs,
mismunandi valkosti próteingjafa, ræktunartækni og framleiðsluaðferða. Í háþróaðri og tryggri
rannsóknar- og þróunaraðstöðu fyrirtækisins er að finna víðtækt úrval af verðmætum
eldisfiskstegundum við fjölbreytt ræktunarskilyrði.
Fiskveiðideild samstæðunnar býður upp á margþætt úrval þjónustu varðandi fiskifræði.
Sérþekkingin innan fyrirtækisins nær yfir margar fræðigreinar, sem gerir því kleift að sinna
verkefnum á sviði rannsókna, umhverfisverndar og viðskiptastarfsemi.
AquaBio Tech Group tekur einnig að sér verkefni í samstarfi við alþjóðlegar
rannsóknarstofnanir, ríkisstofnanir, frjáls félagasamtök og einkageirann. Fyrirtækið býður
upp á alhliða úrval af fjölþrepa vettvangskönnunum, og sérhæfir sig í söfnun, vinnslu og
greiningu á fiskveiðigögnum-og sýnum, bæði á úthafsmiðum og strandveiðisvæðum.
Sjávardeild fyrirtækisins býður upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal kortmælingar á
hafsbotni, aðstoð við framkvæmdir og upplýsingakerfi fyrir veiðisvæði. Tæknin sem notuð er
byggir á dýptarmælingum og botnskönnun með hliðarsónar, mati á botntegundum og
botnlagagreiningu, staðfestingu gagna og vettvangsskoðunum með bæði fjarkönnunarbúnaði
og neðansjávarmyndbúnaði.
AquaBio Tech Group mun sýna á bás H22 á IceFish 2026.
Til að fá frekari upplýsingar um hvernig best er að sýna á IceFish, hafið samband við teymið
okkar í gegnum netfangið sales@icefish.com.




