KÓPAVOGUR, ICELAND

12-14 SEPTEMBER 2028

KÓPAVOGUR, ICELAND

NÁMSSTYRKIR ICEFISH 2026

Nú hefur verið tilkynnt hverjir hljóta námsstyrki IceFish árið 2026.

Styrkþegarnir eru Katarzyna Staszek, Ewa Jaros og Malgorzata Barbara Sworowska.

Allar þrjár stunda nám í gæðastjórnun við Fisktækniskólann og starfa í sjávarútvegi. Katarzyna hjá Brim í Reykjavík; Ewa hjá Jakobi Valgeir í Bolungarvík og Malgorzata hjá Nýfiski í Sandgerði.

Í ár veitti IceFish-sýningin þrjá styrki til framhaldsmenntunar fyrir nemendur sem hafa lokið prófi í fiskitækni eða sambærilegri prófgráðu í sjávarútvegsfræðum, fiskvinnslu eða fiskeldi, og hyggja á framhaldsnám sem gagnast getur íslenskum sjávarútvegsiðnaði og atvinnulífi.


Hver styrkur hljóðar upp á 300 þúsund krónur og eru þeir veittir efnilegum nemum til að standa straum af kostnaði við annað árið af tveimur í framhaldsnámi í eftirfarandi greinum við Fisktækniskólann:

a) nám í vinnslutækni hjá Marel

b) nám í gæðastjórnun eða

c) nám í fiskeldi


Styrkirnir eru borgaðir út í tvennu lagi, gegn annars vegar kvittun/staðfestingu á greiðslu skólagjalda fyrsta námsmisseris ársins 2026, og hins vegar gegn kvittun/staðfestingu á greiðslu skólagjalda fyrir seinna námsmisseri. Styrkur fyrir annað misseri er aðeins greiddur út ef styrkþegi hefur lokið námi á fyrsta misseri með fullnægjandi árangri.


Umsóknir um styrki voru metnar af sérhæfðri dómnefnd sem skipuð er fagfólki í sjávarútvegi. Í henni sitja m.a. Klemenz Sæmundsson, skólastjóri Fisktækniskólans, Hrefna Karlsdóttir, yfirsérfræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Kjartan Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda, og Bjarni Jónsson, fulltrúi Íslensku sjávarútvegs-og fiskeldissýningarinnar, IceFish.


Eftirfarandi þættir voru teknir til greina við matið:

1) Árangur í grunnnámi (Fisktækni), a) lokið námi eða b) verkleg færni

2) Starfsreynsla

3) Framtíðaráform (um nám eða vinnu)

4) Fjárhagslegur stuðningur frá öðrum (fyrirtækjum eða sjóðum)

5) Meðmæli (starf/nám)


Nánari upplýsingar um ofangreindar námsleiðir Fisktækniskólans má finna á vefsíðunni www.fiskt.is.