Það borgar sig að telja …
RationFEED breytir sóuðum fóðurkögglum í snjallfóðrun.
Íslenska tæknifyrirtækið Ration hefur þróað RationFEED, tölvusjónarkerfi sem greinir og
telur óétna fóðurköggla sem koma út um affall landeldiskerja. Gögnin er hægt að nota til
að aðlaga fóðrun sjálfkrafa í rauntíma, sem aðstoðar eldistöðvar við að draga úr fóðurkostnaði, vernda vatnsgæði og bregðast með nákvæmari hætti við breytingum á fæðuþörf fisksins.
RationFEED er fest fyrir ofan affall eldistanksins og sameinar sérhæfða sjóntækni, gervigreind og tölvusjón til að greina á milli fæðuköggla og fiskúrgangs. Kerfið getur tengst núverandi fóðrunarbúnaði og stjórnað honum sjálfkrafa. Upplýsingar um fóðrun og sjálfstýringar eru aðgengilegar fóðrunaraðilum í gegnum vefviðmót RationFEED.
Hannað fyrir raunveruleika landeldis
Að halda myndavélinni utan vatns er lykilatriði við notagildi kerfisins. Myndavélar á kafi í vatni geta orðið fyrir áhrifum af mengun og tæringu, óhreinum linsum og lélegu skyggni. Þar sem myndavélin er ekki á kafi í tankinum eða affallsrörinu truflar hún ekki vatnsflæði eða fjarlægingu dauðra fiska, og hægt að þrífa hana sjálfvirkt.
Sérhæfðu sjóntækin eru sérstaklega mikilvæg. Erfitt getur verið að greina fóðurköggla frá öðrum brúnleitu lífrænu efni í frárennslisvatni í venjulegri lýsingu. Með lýsingu RationFEED verða kögglarnir sýnilegir og hægt að sjóngreina þá með hugbúnaðinum, jafnvel í hröðu og ókyrru flæði. Einn helsti tæknilegi styrktur RationFEED er einkaleyfisvernduð samsetning lýsingar, sjónrænnar síunar, myndgreiningar og sveigjanlegra möguleika í uppsetningu.
Viðurkenning frá faginu
Eftir þróun og prófanir á árunum 2023 -2025 er nú búið að taka RationFEED í notkun í eldistöðvum á Íslandi og í Noregi. Tæknin er samþætt beint við fóðrunarkerfi í eldistönkum, sem gerir kleift að fylgjast stöðugt með búnaðinum og stjórna honum sjálfvirkt.
Ration býður upp á kerfið í leigufyrirkomulagi, sem felur í sér þriggja mánaða prufuáskrift, áframhaldandi hugbúnaðarviðbætur og tæknilegan stuðning.
„RationFEED telur óétna fóðurköggla þegar þeir fara úr affallslögninni og notar þessar upplýsingar til að stjórna fóðrun til að hámarka fiskvöxt, fóðurnýtingu og vatnsgæði,“ segir David Jarron, sölu- og þjónustustjóri Ration.
Ration var fyrr á þessu ári valið í hóp átta úrslita-keppenda sem þóttu helst koma til greina
til að hljóta nýsköpunarverðlaun í flokki sjávarafurða á viðskiptaráðstefnunni North Atlantic Seafood Forum, vegna vinnu fyrirtækisins við að breyta úrgangi sem mönnum hafði áður yfirsést í hagnýta framleiðslu með fulltingi hátæknilausna.
Ration mun sýna á bás C10 á IceFish 2026. Til að bóka sýningarbás á IceFish er hentugast að hafa samband við teymið okkar í netfanginu sales@icefish.is.




