Átján dönsk fyrirtæki sýna á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, IceFish 2026,
þar sem sjálfbær vöxtur, græn umskipti og hringrásarhagkerfið eru ofarlega á baugi.
Fyrirtækin sýna saman í Danska skálanum og kynna lausnir úr allri virðiskeðju sjávarútvegs
og fiskeldis, að viðbættum helstu styrkleikum Dana í vistvænum áherslum sem falla vel að
lykilþemum sýningarinnar.
„Við höfum tekið þátt í IceFish-sýningunum í mörg ár og komum sífellt aftur vegna þess að
Ísland er mikilvægur markaður fyrir dönsk fyrirtæki. Hér geta þau kynnt vörur sínar og
lausnir og hitt viðskiptavini og viðskiptafélaga,“ segir Martin Koefoed Lilleoere, yfir-
maður fisktæknisviðs Danish Export, sem skipuleggur Danska skálann.
Dönsku sýnendurnir spanna stóran hluta virðiskeðju sjávarútvegs og fiskeldis og helstu
styrkleikar þeirra falla vel að meginþemum IceFish í ár, sem eru sjálfbær vöxtur, græn
umskipti og hringrásarhagkerfið.
Að breyta úrgangi í verðmæti
Fyrirtækið RUNI sýnir nú í fyrsta skipti á IceFish, en það hefur þó fyrir löngu skapað sér
nafn á Íslandi í gegnum samstarfsaðila sína hérlendis. RUNI sýnir á IceFish í samstarfi
með Pure North Recycling, sem er í eigu Sigurðar Halldórssonar, umboðsaðila þess á
Íslandi. Fyrirtækið mun kynna á IceFish þjöppu sína fyrir frauðpólýstýren (EPS), efni sem er
mikið notað í fiskikassa í sjávarútvegi.
Með því að þjappa notuðum EPS-fiskikössum tekur efnið umtalsvert minna pláss og hægt
er að flytja það til endurvinnslu með skilvirkari hætti. Með lausn RUNI er hægt að minnka
rúmmálið allt að fimmtíufalt. Þetta gerir flutninga ekki aðeins hagkvæmari heldur gerir
einnig kleift að breyta notuðum umbúðum í verðmætt hráefni.
„Við sjáum vaxandi eftirspurn eftir lausnum sem breyta úrgangi í verðmæti. Það er
skynsamlegt bæði frá umhverfislegu og efnahagslegu sjónarmiði. Markmið okkar með
því að sýna á IceFish er að mynda ný viðskiptasambönd við suma af helstu hagsmunaaðilum
í sjávarútvegi og fiskeldi,“ segir Jens Kristian Kristensen, svæðissölustjóri hjá RUNI.
Ný á IceFish – en ekki ný í greininni
Ýmsir fleiri sýnendur í Danska skálanum eru líka að taka þátt í IceFish í fyrsta skipti. Eitt
þeirra er Landia, fyrirtæki sem er þó þekkt nafn á Íslandi og á alþjóðamarkaði. Landia hefur
um árabil útvegað íslenskum viðskiptavinum sínum margvíslegan búnað á sviði fiskveiða og
fiskeldis, enda býr það yfir langri og mikilli reynslu á því sviði.
Landia mun sýna á IceFish nýuppfært vinnslukerfi fyrir fiskmeltu, sem felst í að vinna
dauðan fisk og fiskúrgang í próteinmauk með þrautstýrðu og hreinlegu ferli. Kerfið
uppfyllir fyllstu kröfur um líföryggi og dregur úr áhættu sem tengist meðhöndlun og geymslu
á dauðum fiski. Möguleikar til að nýta próteinmaukið sem til verður velta á innlendum
reglum og gæðum hráefnisins, en m.a. nýtist það í gæludýrafóður eða til frekari vinnslu til
að endurheimta úr því prótein og lýsi.
Landia hefur sterka stöðu í Noregi, þar sem fiskeldisfyrirtækjum er samkvæmt lögum
skylt að nota búnað til að vinna dauðan fisk í meltu. Landia lítur á IceFish sem fyrirtaks
tækifæri til að styrkja enn frekar stöðu sína á Íslandi sem og á öðrum mikilvægum
alþjóðlegum mörkuðum fyrir fiskeldi og sjávarútveg.
„Ísland er áhugaverður markaður og ég reikna með að hann muni verða okkur stöðugt
mikilvægari eftir því sem fram líða stundir. Þar sem IceFish er einnig ákaflega alþjóðleg sýning
vonumst við til að hitta mögulega viðskiptavini frá mörkuðum á borð við Kanada og
Bandaríkin,“ segir Thorkild Maagaard, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Landia.
Danski skálinn er skipulagður af fisktæknisviði Danish Export og nýtur stuðnings
viðskiptaráðs danska utanríkisráðuneytisins.
Í Danska skálanum, á sýningarbásum D10-D29, geta gestir IceFish einnig hitt fyrir
eftirfarandi fyrirtæki:
A-Consult Aqua |
Atlantic Shipping |
AUMA Denmark |
Beckhoff Automation |
CS Pipe Solutions |
DanFish International | Dania Plast | Gravotech |
Karstensens Skibsværft |
KD Group | Landia | OXYMAT |
| Plast Solutions | Plast-Line | Randers Reb International |
RUNI/Pure North Recycling |
SulfiLogger |
Wapro |




