FS Automation sérhæfir sig í alhliða sjálfvirknilausnum fyrir íslenskan iðnað og sjávarútveg. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á breitt úrval af gæðaþjónustu, þar sem megináherslan er lögð á hönnun, forritun og hermun sjálfvirknikerfa.
Okkar samstarfsaðilar og lausnir:
- B&R Industrial Automation & Codian: Framúrskarandi sjálfvirknibúnaður, þar á meðal hinir þekktu ryðfríu delta róbotar frá Codian sem henta sérstaklega vel í matvæla- og fiskiðnaði.
- ABB: Innflutningur og forritun á róbotum fyrir margvísleg verkefni.
- EVOTEC: Sérhannaðar hlífðarkápur sem verja róbota í krefjandi umhverfi sjávarútvegsins.
- Noux Node: Snjallar mælaborðslausnir sem gefa notandanum skýra og nákvæma mynd af bæði rauntímastöðu véla og sögulegum gögnum.
Okkar gildi: Gæði • Traust • Jákvæðni