BAADER hæstánægt með árangurinn á „ótrúlegri“ IceFish-sýningu
24. september 2026Eftir Press PR
Baader
Deila þessari grein
BAADER á Íslandi fagnaði í dag mjög vel heppnaðri þátttöku á IceFish-sýningunni, ekki síst vegna jákvæðra viðbragða við kynningu á nýjasta búnaði fyrirtækisins, sem framleiddur er hérlendis í verksmiðju fyrirtækisins í Kópavogi.
Helsta nýjung fyrirtækisins á heimsvísu, flökunarvélin 189 Pro fyrir hvítfisk, var í brennidepli á veglegum sýningarbás BAADER á IceFish 2026. Að sögn Baldvins Johnsen, framkvæmdastjóra BAADER á Íslandi, var stríður straumur gesta að básnum og stundum var hreinlega troðfullt þar.
„Þetta var alveg ótrúlegt, sjö eða átta manns störfuðu á básnum og allir höfðu í nógu að snúast. Þetta var frábært og mikill áhugi ríkti. Við höfum fengið gríðar aðsókn og margar fyrirspurnir, og upplifunin í heildina hefur verið mjög jákvæð fyrir okkur,“ segir Baldvin.
Hann segir að auk tækifærisins til að kynna nýju vöruna hafi sýninguna haft ómetanlegt gildi fyrir bein og milliliðalaus samskipti við viðskiptavini.
„Aðalatriðið er að hitta fólk, þá sem nota vélarnar okkar, og eiga bein samskipti við viðskiptavinina - það skiptir öllu máli. Við þrífumst á endurgjöfinni því að hún hjálpar okkur að bæta okkur og gera enn betur í þágu viðskiptavina fyrirtækisins.“
Baldvin bendir á einstaka stöðu lands og þjóðar í því sambandi. „Ísland er miðstöð sjávarútvegs, hvort sem um ræðir vinnslu, veiðar eða annað tengt greininni. Þannig að ég held að það skipti ekki máli frá hvaða sjónarhorni maður nálgast þetta; maður hittir alltaf áhugavert fólk og lærir eitthvað gagnlegt hér.“