
Þremur árum eftir að rýma þurfti Grindarvíkurbæ vegna eldsumbrota eru skilaboð bæjarbúa og fyrirtækja þar skýr á IceFish 2026: Við erum sterkari saman.
Fyrir marga er eflaust erfitt að gera sér í hugarlund þá vegferð sem hófst – bókstaflega – með eldgosunum þann 10. nóvember 2023, ekki síst nú þegar búið er að samþykkja að íbúar megi aftur snúa til heimila sinna og skólastarf er hafið í bænum á nýjan leik.
IceFish hefur lengi verið mikilvægur viðburður fyrir Grindavík, en sýningin í ár gefur íbúum og fyrirtækjum tækifæri til að sýna opinberlega þá samheldni sem hefur haldið anda samfélagsins lifandi.
„Útgerð og tengd starfsemi hafa lengi sett svip sinn á Grindavík, þannig að hefðbundinn sjávarútvegur er auðvitað bæjarbúum í blóð borinn,” segir Ásta Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, sem lagði ötula hönd á plóginn við að setja upp rými helgað bænum á IceFish 2026.
„En fjölbreytt nýsköpun í kringum sjávarútveginn og þjónusta honum tengd hefur líka blómstrað í bænum, raunar í öllu vistkerfinu þar og virðiskeðju greinarinnar. Þess vegna ákváðum við að bjóða fyrirtækjum bæjarins að taka höndum saman á sýningunni undir sameiginlegum fána Grindavíkur.“
Alls eru það tuttugu fyrirtæki úr bænum sem leiða saman hesta sína á IceFish til að kynna þjónustu sína og framleiðslu. Fyrirtækin spanna allt frá framleiðslu á súkkulaði til drónatækni og auðvitað sjávarfang og hafa komið sér fyrir á básum án þess að flagga vörumerkjum sínum sérstaklega.
„Hér er enginn einstakur aðili í forgrunni,” segir Ásta. „Þetta er sameiginlegt átak til að sýna hvað samfélag getur gert þegar allir leggjast á eitt, og til að sýna hvað sjávarútvegur og bláa hagkerfið í Grindavík snúast um. Sum þessara fyrirtækja eru keppinautar, en þau standa hlið við hlið og segja við gesti IceFish: Saman erum við sterkari. Það er einmitt kjarninn í þessu verkefni hér á IceFish, þ.e. að sýna fram á að við erum sterkari saman en hvert fyrirtæki út af fyrir sig.“




