Magnús Þór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri NP Innovation á Íslandi, leggur áherslu á mikilvægi samstarfs í sjávarútvegi og fiskeldi og þau fjömörgu tækifæra sem IceFish býður upp á fyrir gesti og sýnendur.
Magnús Þór flutti erindi á öðrum degi IceFish-ráðstefnunnar 100% Fish for Profit, og miðlaði þar af reynslu sinni úr fiskeldisgeiranum. Magnús Þór minnti á mikilvægi samstarfs innan greinarinnar ásamt þeim áskorunum sem hún stendur frammi fyrir.
Magnús Þór lagði áherslu á mikilvægi ráðstefna á borð við þær sem haldnar eru á vegum IceFish, þar sem þær snúist um mun meira en einungis sýningahald, heldur bjóða upp á tækifæri til samræðna og tengslamyndunar við annað fagfólk í greininni.
„Fyrir mig snúast ráðstefnur sem þessi um mun meira en fyrirlestra og sýningarbása. Þær snúast um samræður, hugmyndaskipti og skilning á því hvert sjávarútvegur og fiskeldi stefna,” segir Magnús Þór.
Hann nefndi að meðal helstu mála sem fiskeldi glímir við um þessar mundir má nefna velferð fiska, nýtingu vatns og orku, sjálfbærni, sjálfvirkni og aukið vægi tækni, í því skyni að skapa öflugri og þolnari fiskeldisrekstur. IceFish gefur þátttakendum tækifæri til að skiptast á hugmyndum og ræða hvert sjávarútvegur og fiskeldi stefna. Nú á seinasta degi IceFish 2026, skapa öll þau tengsl og umræður sem áttu sér stað á meðan á sýningunni og ráðstefnunum stóð tækifæri til áframhaldandi samstarfs og miðlunar þekkingar innan sjávar
Mynd og efni: Mangus Thor Asgeirsson, framkvæmdastjóri NP Innovation (færsla á LinkedIn)