Sérfræðingar þýska iðntæknifyrirtæksins ifm nýta IceFish 2026-sýninguna til að kynna kerfislausnir sínar og efla tengsl við viðskiptavini úr íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi. Kurt Aakjær Jakobsen, sölustjóri ifm í Danmörku, sagðist á öðrum degi sýningarinnar vera afar ánægður með þann mikla áhuga sem sýndur væri tækni fyrirtækisins, og að IceFish hafi einnig veitt fyrirtaks tækifæri til að endurnýja kynni við fasta viðskiptavini og mynda ný tengsl. Kurt Aakjær lagði áherslu á sérfræðiþekkingu fyrirtækisins á sviðum eins og eftirliti með titringi, heildarnýtni búnaðar (OEE), orkustjórnun og IO-Link, auk moneo IIoT-vettvangsins.
„Fyrir ifm er IceFish mikilvægur vettvangur til að sýna fram á hvernig samtengd tækni og gagnadrifnar lausnir geta stuðlað að skilvirkari og snjallari iðnaðarrekstri,” sagði Kurt Aakjær.
Hann kvaðst einnig fagna þeirri gríðarlegu þróun sem átt hafi sér stað í íslenskum iðnaði frá síðustu heimsókn hans til Íslands.