
Íslenska fyrirtækið GreenFish, sem sýnir á IceFish og er leiðandi í hönnun spálíkana
fyrir atvinnuveiðar knúnar af gervigreind, greinir nú mikla aukningu í eftirspurn frá
fiskiskipaflotum um allan heim. Þetta gerist samfara því að útgerðarfélög leita nú
leiða til að bæta hagkvæmni og draga úr rekstrarkostnaði af völdum hækkandi
eldsneytisverðs á heimsmarkaði.
Dæmi um þessa auknu eftirspurn er nýr samningur sem GreenFish var að gera í
Mexíkó, en hann felur í sér að fyrirtækið muni útvega nokkrum af rótgrónustu
útgerðarfyrirtækjum þar í landi, Baja Aqua Farms og Grupomar, AI-spálíkön sín fyrir
veiðar.
Mexíkósku útgerðirnar bætast þannig við ört stækkandi hóp viðskiptavina GreenFish,
en á meðal þeirra eru m.a. leiðandi fyrirtæki á sviði túnfiskveiða, botnfiskveiða og
veiða á smærri úthafsfisktegundum á öllum helstu hafsvæðum heimsins.
Flaggskipið í rekstri GreenFish er háþróað gervigreindarlíkan sem spáir fyrir um
staðsetningu, magn, stærð og samsetningu meðalafla allt að átta daga fram í
tímann, með lágmarksnákvæmni upp á 75%, óháð tegundum og hafsvæðum.
Lykilþáttur í rekstri GreenFish er sú staðreynd að spálíkanið er sérsniðið að hverjum
og einum viðskiptavini, það er í eigu hans og fullur trúnaður ríkir um innihald þess.
Með tímanum verður spálíkan hvers viðskiptavinar að varanlegri eign sem geymir
stefnumótandi upplýsingar, því að gervigreindin að baki er stöðugt að læra, aðlagast
og bæta við sig gögnum og þekkingu. Líkanið eykur því og eflir sífellt samkeppnis-
forskot viðskiptavina GreenFish umfram þær útgerðir sem tileinka sér þessa
tækniþróun seinna. Í atvinnugrein á borð við sjávarútveg, sem tekur örum
breytingum, skiptir því miklu máli að vera í fararbroddi innleiðingar á þessari tækni
því að enginn vill dragast aftur úr öðrum samskeppnisaðilum.
Eldsneyti er einn stærsti kostnaðarliður í útgerð fiskiskipa og því skiptir miklu máli
að geta siglt beint á gjöful fiskimið, með tilheyrandi sparnaði í eldsneytisnotkun.
Spálíkan GreenFish veitir viðskiptavinum fyrirtækisins það samkeppnisforskot og
eykur um leið rekstrarhagkvæmni þeirra.
Til að sýna á IceFish hafið samband við sales@icefish.is




