Argentínsk skipasmíðastöðin Astillero Naval Federico Contessi y Cía. S.A. mun sýna í fyrsta skipti á IceFish í september nk.
Skipasmíðastöðin á að baki yfir 75 ára sögu og sérhæfir sig í smíði og viðgerðum á fiskiskipum. Fyrirtækið hefur smíðað og sjósett alls 156 ný skip, öll vottuð af RINA, Lloyds eða Bureau Veritas.
Á upphafsárunum voru skipin smíðuð úr tré, en þegar fram liðu stundir skipti fyrirtækið yfir í stál og ál af því tagi sem sérhert er fyrir herskipasmíði.
Fyrirtækið hefur í dag aðstöðu til að smíða allt að 8 skip samtímis undir þaki fjögurra gríðarstórra og hátæknilegra verksmiðjubygginga, sem staðsettar eru í höfninni í Mar del Plata í Argentínu.
Skipin eru afhent fullsmíðuð og tilbúin til rekstrar og siglingar fyrir eigin vélarafli á sjósetningardegi.
Skipasmíði Astillero Naval Federico Contessi y Cía. S.A. einkennist af gæðum og ströngu gæðaeftirliti með jafnt hinu smæsta sem hinu stærsta sem lýtur að verkinu. Sífellt er verið að tæknivæða smíðaferlið og bæta búnað skipanna. Orðspor fyrirtækisins varðandi bæði verkskil og að standast fjárhagsáætlanir er til fyrirmyndar.
Starfsfólkið samanstendur af þrautreyndum sérfræðingum annars vegar og hins vegar yngri fólki sem hefur fengið sérþjálfun innan veggja fyrirtækisins. Þorri skipanna sem stöðin smíðar styðst við hönnun skipaverkfræðinga fyrirtækisins sjálfs, en einnig er boðið upp á að smíða skip eftir forskriftum utanaðkomandi hönnuða og arkitekta ef þess er óskað.
Til að slást í hópinn með Astillero Naval Federico Contessi y Cía. og öðrum öflugum og spennandi sýnendum á IceFish í september, er þægilegast að hafa samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




