Hin nýja Miðstöð fiskeldis sem opnar á IceFish í september er sannarlega að slá í gegn og gríðarleg eftirspurn eftir sýningarrýmum úr öllum heimshornum. Sænska fyrirtækið Amokabel var að bætast í fríðan flokk sýnenda í nýju miðstöðinni.
Amokabel framleiðir fjölbreytt úrval af köplum, snúrum og leiðslum sem eru sérsniðnar að þörfum fiskeldis, með áherslu á langan endingartíma þeirra og getu til að aðlagast kröfum viðskiptavina og aðstæðum á viðkomandi fiskeldisstöðvum. Á meðal þeirra lausna sem Amokabel býður upp á er stálhjúpaði AQUALine Power Flex kapallinn, ýmsar gerðir blendingakapla (svo sem kaplar sem sameina koparleiðara fyrir afl og ljósleiðara fyrir gögn), og AmoExtreme kapalinn, einkaleyfisvarin hönnun sem er þróuð fyrir sérstaklega krefjandi aðstæður.
Verkfræðiteymi Amokabel þróar sérsniðnar lausnir við hönnun kapla, þar á meðal lausnir sem taka mið af nýjum reglugerðum varðandi umhverfismál í fiskeldi. Teymið býr sömuleiðis yfir víðfeðmri sérþekkingu á hönnun fullbúinna kaplakerfa sem samþætta afl, merkjaboð, loftflæði og súrefni, og eru ætluð til stuðnings rafkerfum, fóðurkerfum, samskiptum, myndavélaeftirliti og hreinsiþjörkum.
Allar framleiðslustöðvar Amokabel eru hátæknilegar og nútímalegar og gerðar fyrir sveigjanleika og hraða aðlögun. Þetta tryggir að afhendingartími vörunnar er stuttur, hún er alltaf í hæsta gæðaflokki og sérsniðin að óskum hvers og eins viðskiptavinar í fiskeldisgeiranum.
Amokabel var stofnað árið 1992 og hefur notið mikillar velgengni allar götur síðan. Fyrirtækið hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á tækniþróun, nútímavæðingu og sérsniðnar lausnir fyrir viðskiptavini sína. Með þau gildi að leiðarljósi óx Amokabel hratt og er nú arðbær og farsæll framleiðandi á köplum, snúrum og leiðslum á alþjóðavísu.
Innan samstæðunnar standa nokkur fyrirtæki sem sérhæfa sig í framleiðslu og dreifingu á köplum og leiðslum af margvíslegu tagi, sem og framleiðslu á búnaði fyrir beislun endurnýjanlegra orkugjafa á borð við sólarorku, vindorku og vatnsorku.
Höfuðstöðvar Amokabel og aðalverksmiðja fyrirtækisins eru staðsettar í bænum Alstermo í Svíþjóð og nær framleiðslusvæðið yfir samtals 32.000 fermetra.



