
Danskur sýnandi á IceFish vígir nýjar höfuðstöðvar
Teymið hjá IceFish óskar danska fyrirtækinu LSM Pumps til hamingju með vígslu
nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins í bænum Vrå á norðanverðu Jótlandi. LSM Pumps
er eitt þeirra öflugu fyrirtækja sem sýna á IceFish 2026 í september nk.
Vrå er hluti af sveitarfélaginu Hjørring, samnefnt stærsta kaupstaðnum þar. Søren
Smalbro, bæjarstjóri Hjørring, vígði nýju höfuðstöðvarnar formlega og nefndi við
það tækifæri að saga LSM Pumps væri fyrirtaks dæmi um ótrúlega velgengni
iðnaðarfyrirtækis á Norður-Jótlandi. „Þetta er saga um sigurför fyrirtækis, eins
merkileg saga og nokkur slík getur yfirhöfuð orðið,” sagði Søren.
Nýju höfuðstöðvarnar marka mikilvægan áfanga í þróun fyrirtækisins og veita
starfsfólki þess betri vinnuaðstöðu, bæta þjónustu við viðskiptavini og styrkja
framtíðarvöxt.
„Það skiptir okkur miklu máli að geta safnað svona mörgum mætum gestum saman
við þetta sérstaka tilefni. Nýju höfuðstöðvarnar eru mikilvægt skref fyrir LSM Pumps
og við erum stolt af því að fjárfesta bæði í fyrirtækinu okkar og nærsamfélaginu í
Vrå,“ sagði Leo Sørensen aðaleigandi og framkvæmdastjóri LSM Pumps við
vígsluathöfnina.
LSM Pumps er alfarið í eigu danskra aðila. Fyrirtækið hóf starfsemi sína árið 1982 og
var í upphafi lítið vélaverkstæði í útjaðri Børglum. Eftir nokkurra ára rekstur þróaði
fyrirtækið slöngudælu og hóf framleiðslu á hringlaga slöngudælum árið 1993, sem
fengust aðeins í tveimur stærðum í fyrstu. Núna fást slöngudælur LSM Pumps hins
vegar í fjórtán mismunandi stærðum og eru aðlagaðar að þörfum iðnfyrirtækja í ótal
starfsgreinum.
Til að slást í hópinn með LSM Pumps og sýna á IceFish, hafið samband við teymið
okkar í netfanginu sales@icefish.is.




