
Sænska fyrirtækið Fagerberg hefur nú kirfilega skotið rótum hérlendis. Fagerberg
sérhæfir sig í stjórnun, mælingum flæðis, gæða-eftirliti, stjórnbúnaði, ventlum
og tækni sem þarf til að hámarka ferla, og býður m.a. upp á skynjara, mælitæki og
loka fyrir landeldi, sjóeldi og vinnslustöðvar á landi. Íslenska fyrirtækið Vermi varð
hluti af Fagerberg-samsteypunni árið 2024 og ber reksturinn hér nafnið Fagerberg
Ísland.
Með því að samþætta staðbundna þekkingu Vermis og alþjóðlegt umfang Fager-
bergs, jókst geta fyrirtækisins til að bjóða íslenskum aðilum upp á sérsniðnar fag-
lausnir sem mæta mismunandi þörfum þeirra og kröfum.
Stofnandi Vermis, Aðalsteinn Möller, stýrir rekstri Fagerberg á Íslandi, en hann býr
yfir viðtækri reynslu á sviði jarðvarmavera, hitaveitna, jarðborana, fráveitna,
gagnavera og fleiri iðnaðarferla. Að auki býr Aðalsteinn yfir alþjóðlegri starfsreynslu
í verkefnastjórnun, hönnu pípukerfa og vélbúnaðar, innkaupum, samningagerð o.fl.
Fagerberg hjálpar til við að tryggja stöðugar aðstæður í vatnsveitukerfum og
fiskeldisstöðvum með lausnum fyrir vatnsgæði, loka, mælitækja og sjálfvirkni.
Nefna má ýmis dæmi um þau svið sem Fagerberg leggur hönd á plóginn til að auka
verðmætasköpun hjá viðskiptavinum sínum:
• Stjórnun á súrefni, pH, CO₂, hitastigi og seltu í klakstöðvum, kynbótastöðvum og
framleiðslutjörnum
• Öruggt framboð og eftirlit til að greina vandamál
• Snjallar vatnstöflur og mælibúnaður sem einfalda daglega stjórnun og skjalavinnslu
• Loka- og pípusamsetningar sem auðvelda skolun, tæmingu og dreifingu vatns
milli kerfishluta
• Uppfærsla á núverandi aðstöðu, endurnýting á því sem virkar og úrbætur á þeim
þáttum sem þarf að lagfæra
Fagerberg er í eigu sænsku tækni-og iðnaðarsamsteymunnar Indutrade, sem er
alþjóðlegt fyrirtæki með yfir 200 dótturfélög í ríflega 30 löndum. Indutrade er þekkt
fyrir að státa af sterkum frumkvöðlaanda í rekstri sínum og framleiðslu, og kappkostar
öllum stundum að stuðla að bættum rekstri, þróun og úrbótum hjá fyrirtækjum.
Til að slást í hópinn með Fagerberg og öðrum öflugum sýnendum á IceFish 2026,
hafið samband við sales@icefish.is.




