
Wagner Fire Safety AS hefur nú bæst í sístækkandi hóp norskra fyrirtækja sem
sýna á IceFish 2026.
Wagner Fire Safety, sem hefur höfuðstöðvar sínar í sveitarfélaginu Verdal í
Þrændalögum í Noregi, sérhæfir sig í háþróaðri tækni fyrir brunavarnir. Fyrirtækið
var stofnað árið 2008 og hefur frá upphafi helgað sig því markmiði að verja byggingar,
tæknilega innviði og verðmætan búnað með áreiðanlegum og framsýnum
brunavarnalausnum. Það er nú hluti af þýsku alþjóðasamsteypunni Wagner Group GmbH.
Wagner Fire Safety flytur nýjustu tækni og sérþekkingu til markaða í Noregi, Svíþjóð,
Finnlandi, Danmörku og á Íslandi og býður upp á brunavarnalausnir fyrir fjölmörg
notkunarsvið, þar á meðal djúpfrystigeymslur, skip, vélar og tækjabúnað.
Teymið hjá Wagner Fire Safety AS hefur að leiðarljósi þá sannfæringu að skilvirkar og
öruggar brunavarnir einskorðist ekki við uppsetningu á tækjabúnaðinum sjálfum,
heldur spanni mjög breitt svið þar sem ákveðnir þættir fléttast saman í eina heild.
Brunavarnir snúist þannig að miklu leyti um samstarf, nákvæmni og áreiðanleika til
langs tíma. Teymið leiðbeinir viðskiptavinum fyrirtækisins frá fyrstu óskum þeirra um
brunavarnir, í gegnum skipulags- og undirbúningsferlið og verkfræðilega hönnun, allt
til snurðulausrar uppsetningar sjálfs kerfisins. Með þessari nálgun er tryggt að
brunavarnarlausnin sé sérsniðin að þörfum hvers og eins viðskiptavinar.
Tæknimenn fyrirtækisins búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á öllum hliðum
brunavarna. Þeir veita í öllum verkefnum samstarfsaðilum sínum, sem annast
uppsetningu kerfanna, ráðgjöf um heppilegustu staðsetningu lagna og tæknibúnaðar
fyrir óvirk gaskerfi/súrefnisdrepandi kerfi. Hvert einasta skref þjónustunnar er skjalfest
vandlega, til að eigendur/notendur brunavarnakerfanna hafi fulla yfirsýn yfir þau
og geti stólað á virkni þeirra. Þetta er heildstæð nálgun á þróun, notkun og líftíma
brunavarnakerfa, sem endurspeglar skuldbindingu fyrirtækisins við öryggi, gæði og
traust.
Wagner Fire Safety AS endurskilgreinir brunavarnir með nýstárlegum, skilvirkum og
sjálfbærum lausnum sem eru hannaðar til að koma í veg fyrir brunahættu áður en
hún kann að skapast. Fyrirtækið setur upp upp súrefnisdrepandi kerfi sem mynda
andrúmsloft þar sem eldar geta ekki logað, en tryggja þó um leið að fólk geti dvalið
óhult á afmörkuðum og öruggum svæðum.
Einstaklega næm eldskynjunartæki taka stöðugt sýni af loftinu til að greina jafnvel
smæstu reykjaragnir, sem gerir kleift að uppgötva eld og bregðast við honum á
augabragði.
Einnig útvegar fyrirtækið slökkvikerfi sem kæfa elda hratt og án þess að skilja eftir
efnaleifar, sem gerir þau tilvalin fyrir gagnaver, tæknirými og aðra viðkvæma staði.
Gestir IceFish munu geta heimsótt Wagner Fire Safety AS á sýningarbás F74.
Til að sýna á IceFish er best að senda okkur tölvupóst á netfangið sales@icefish.is.




