Danski skálinn á Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni í september nk. verður í umsjá Útflutningsráðs Danmerkur, Danish Export Association, líkt og hann hefur verið á seinustu sýningum.
Danski skálinn hefur alltaf verið líflegur viðkomustaður fyrir gesti IceFish og Danir eru staðráðnir í að halda uppi stuðinu á sýningunni í haust líkt og fyrri daginn. Fjórtán dönsk fyrirtæki hafa þegar staðfest þátttöku sína í skálanum, þar á meðal OXYMAT A/S, Plast Solutions Aps, Plast-Line A/S og RUNI A/S.
Útflutningsráð Danmerkur hefur allt frá árinu 1965 aðstoðað dönsk fyrirtæki við að hasla sér völl og vaxa á alþjóðavettvangi með því að veita þeim ráðgjöf, innsýn í erlenda markaði og útvega tengiliði. Fyrirtæki sem tilheyra ráðinu geta státað af 49% meiri útflutningi en önnur sambærileg dönsk útflutningsfyrirtæki sem standa utan þess.
Ráðið býr yfir sterku alþjóðlegu neti sem samanstendur af yfir 700 dönskum útflutningsfyrirtækjum. Í krafti samstarfsins og heildarinnar geta fyrirtækin stutt hvert annað í glímunni við ýmsar hagnýtar áskoranir sem mæta þeim á erlendum mörkuðum.
Tengslanetið er lykilatriði í starfsemi Útflutningsráðs Danmerkur og IceFish býður upp á fullkomið tækifæri fyrir sýnendur að tengjast dönskum sýnendum og íslenskum samstarfsaðilum þeirra – að ógleymdum fjölmennum og og breiðum hópi alþjóðlegra gesta.
Fyrir frekari upplýsingar um sýnendur í Danska skálanum, hafið samband við
Martin Winkel Lilleøre maw@danishexport.dk
Lise Marie Hornsved lmh@danishexport.dk
Eða kíkið á heimasíðuna https://www.danishexport.dk/en/events/251943/event-icelandic-fisheries-&-aquaculture-2026-22-09




