
Nýr sýnandi á IceFish 2026, Octaform, býður upp á háþróaðar lausnir fyrir fiskeldi
Kanadíska fyrirtækið Octaform hefur öðlast viðurkenningu á alþjóðavísu sem
leiðandi aðili í hönnun og framleiðslu á lausnum fyrir varanleg steypumót og
innfóðrunarkerfi. Fyrirtækið býður nú fiskeldisgeiranum upp á tanka/geyma sem
skapa einstaklega hagstæðar aðstæður fyrir fiskeldi.
Hérlendis hefur Octaform átt í samstarfi við bæði Arnarlax og First Water.
Fyrirtækið setti upp fjóra áttstrenda klaktanka fyrir Arnalax, hver þeirra 12 metrar í
þvermál og 4 metrar á hæð. Til að bæta vatnsflæði og heilbrigði eldisfisksins voru
tankarnir hannaðir með ávölum hornum sem hafa 600 mm radíus, en þessi lausn
hámarkar hringflæðið og tryggir að svæði þar sem hætta er á að úrgangur geti safnast
upp verði sem allra fæst.
Octoform hefur verið þátttakandi í uppbyggingu á eldisstöð First Water í Þorlákshöfn
allt frá fyrsta áfanga hennar, en þá lagði fyrirtækið til marga tanka sem samþættir voru
nauðsynlegum eiginleikum kerfanna, svo sem pípulögnum og aðgangsrýmum. Til að
lengja endingartíma tankanna og draga úr viðhaldsþörf eru tankarnir klæddir með
sléttri og hreinsanlegri PVC-fóðringu Octaform.
Forsvarsmenn Octaform segja að aðlögunarhæfni kerfanna sem það framleiðir veiti
nauðsynlegan stuðning við nýstárlega nálgun First Water í hönnun stöðvarinnar. Hún
tryggi bæði rekstrarhagkvæmni og ábyrgar umhverfislausnir í stöðinni, sem er eitt
metnaðarfyllsta verkefni í fiskeldi á Íslands til þessa.
Hægt er að samþætta búnað Octaform við allt frá einföldum eldistönkum til
flóknustu endurvinnslukerfa sem notuð eru í fiskeldi. Lausnir Octaform eru
einkaleyfisvarðar, fljótlegar í samsetningu án sérhæfðs vinnuafls eða stórvirkra
tækja, og eru þær einu á markaði sem móta og vernda veggi tanka í einu skrefi.
Frágangurinn er innifalinn í búnaðinum við afendingu, sem gerir fóðringu,
klæðningu og þéttiefni óþörf á uppsetningarstað.
Til að sýna á IceFish hafið samband við sales@icefish.is




