Hátæknifyrirtækið Fishfacts mun sýna á IceFish 2026, og fagnar því um þessar
mundir að norska fyrirtækið Kongsberg Maritime hefur gengið til liðs við vaxandi
net þjónustuaðila þeirra.
Fishfacts er leiðandi stafrænn vettvangur fyrir alþjóðlegan sjávarútveg, en
fyrirtækið safnar og miðlar rauntímaupplýsingum um ríflega 14.000 fiskveiðiskip í
yfir 40 löndum, með því að sameina AIS-mælingar um gervihnött, siglingagögn
og gögn um aðstæður á hafsvæðum. Þannig tengir fyrirtækið þjónustuaðila beint
við forystufólk í alþjóðlegum sjávarútvegi.
Kongsberg Maritime er stærsti birgir vindulausna í heiminum og býður upp á
heildar vindu-, stjórn- og eftirlitskerfi fyrir úthafsveiðiskip. Fyrirtækið leggur
mikla áherslu á öryggi, gæði og notendavæna hönnun, og hvert einasta vindukerfi
er algjörlega sérsniðið að þörfum hvers skips. Viðskiptavinir geta valið á milli vökva-
eða rafmagnsdrifkerfa með beinum (án gírs) drifum til að tryggja bestu mögulegu
afköst og skilvirkni.
„Við erum mjög stolt af því að bjóða Kongsberg Maritime velkomið til samstarfs,”
segir Hanus Samró, meðstofnandi Fishfacts. „Það er í fararbroddi á heimsvísu í
hönnun og framleiðslu á vindum og þilfarsbúnaði, og aðild þeirra styrkir verulega þjónustunet okkar.
Við erum hreykin af því að fyrirtækið hafi valið að ganga til
liðs við okkur.“
„Við sjáum Fishfacts sem kjörinn vettvang til að kynna vörur okkar og þjónustu,”
segir Svein Henjesand, sölustjóri fyrir vindur og þilfarsbúnað hjá Kongsberg
Maritime. „Fishfacts veitir ekki aðeins dýrmætar upplýsingar um skip og eigendur
þeirra, heldur gerir okkur einnig kleift að deila uppfærslum um verkefni okkar á alþjóðavettvangi.”
Til að slást í hópinn með Fishfacts og öðrum öflugum sýnendum á IceFish 2026,
hafið samband við sales@icefish.is




