
Sæplast, einn af sýnendum á IceFish 2026, hefur nýlega hleypt af stokkunum
uppfærðri vefsíðu með nýjum og áhugaverðum eiginleikum. Þar á meðal má
nefna samþættingu við staðsetningu, ábendingar viðskiptavina, tilboð-og
samanburðarmöguleika, háþróaðar síur til að auðvelda vöruleit, möguleika á
að skipta um liti og samþættingu við WooCommerce.
Nýja vefsíðan leggur einnig aukna áherslu á þá þætti sem snúa að vörum,
þjónustu og iðngreininni sjálfri, og veitir gleggri yfirsýn en áður yfir starfslið
Sæplasts, átak á sviði sjálfbærni og framleiðsluferlið. Þar er líka hægt að kynna
sér rannsóknir og vitnisburði, skýrslur og greinagerðir, niðurhal, algengar
spurningar, fréttir og tilkynningar um nýjar vörur og viðburði. Allt er þetta sérsniðið
til að hjálpa notendum við að taka upplýstar ákvarðanir á aðgengilegan og þægilegan
hátt.
Á vefsíðunni má sömuleiðis finna yfirlit yfir einstaka sögu Sæplasts, allt frá því að
það var sett á stofn á Dalvík árið 1984. Í þessum fallega bæ við Eyjafjörð hefur
mannlífið og atvinnulífið vitaskuld verið nátengt hafinu frá ómunatíð, og því var
þessi staðsetning ákjósanleg fyrir Sæplast á upphafsárunum. Þar þróaði
fyrirtækið hverfissteypt og einangruð plastker með tvöföldum veggjum, hönnuð til
að viðhalda og bæta ferskleika og öryggi matvæla, ásamt því að styðja við hagkvæma
og snurðulausa meðhöndlun þeirra, bæði um borð í veiðiskipum og í landvinnslu.
Markmið fyrirtækisins voru skýr og hagnýt strax frá byrjun, þ.e. að búa til
endingargóðar og sterkar umbúðir sem auðvelda störf þeirra sem nota þær á
hverjum degi. Sú nálgun í þróun og framleiðslu hefur alltaf verið burðarásinn í
stefnu fyrirtækisins.
Þó að Sæplast sé nú alþjóðlegt fyrirtæki sem þjónar viðskiptavinum um allan
heim, rista rætur þess á Dalvík djúpt og hafa enn mótandi áhrif á hönnun og
gerð þeirra lausna sem fyrirtækið býður upp á um víða veröld.
Til að skoða nýju vefsíðu Sæplasts skaltu smella á IceFish-prófílinn hjá Sæplasti.
Til að slást í hópinn með Sæplasti og öðrum öflugum sýnendum á IceFish 2026
er hentugast að hafa samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is




