
LS vill afnema allar heimildir til loðnuveiða með flottrolli
Landssamband smábátaeigenda (LS) er bæði stuðningsaðili og sýnandi á
IceFish 2026 sýningunni.
LS eru samtök 16 félaga og svæðisfélaga smábátaeigenda um allt land. Innan þeirra
eru hátt í 800 bátar sem eigendur róa í flestum tilfellum einir eða með einn til þrjá
menn með sér. LS var stofnað til að tryggja sameiginlega hagsmuni smábátaeigenda á
öllum sviðum, vera opinber málsvari þeirra og stuðla að framförum á sviði fiskveiða,
vöruvöndunar, reglugerða um veiði og kvóta, öryggis- og tryggingamála og annarra
mála er þá varða.
Helstu baráttumál sambandsins í gegnum tíðina hafa verið að auka veiðiheimildir
til strandveiða og að fjölga strandveiðidögum, og má segja að sú barátta hafi staðið
óslitið yfir ár hvert frá því að LS var stofnað árið 1985. Sem dæmi um önnur baráttumál
má nefna að stjórn LS skoraði fyrr á þessu ári á atvinnuvegaráðherra að afnema
tafarlaust allar heimildir til veiða á loðnu með flottrolli.
Sambandið vill einnig að tengt byggðakvóta verði tekin upp löndunarívilnun, þannig
að almenna byggðakvótanum verði úthlutað sem ívilnun við löndun. Þetta ætti að
mati LS að gilda fyrir línu- og handfærabáta undir 30 tonnum.
Þá berst LS einarðlega gegn öllum áformum um að línuívilnun verði skert og jafnvel
aflögð. Sambandið telur ljóst að útgerð tuga smábáta standi og falli með línuívilnun
og alls engin rök séu fyrir að ógna útgerð þeirra, nema ef vera skyldi meðvituð
ákvörðun að auka samþjöppun með færslu veiðiheimilda til stærri útgerða.
Innan LS eru aðallega krókaaflamarksbátar og aflamarksbátar sem stunda
strandveiðar, og nýta við það umhverfisvæn veiðafæri. Þorskur er mikilvægasta
fisktegund smábáta og myndar stærsta hluta heildaraflans, en aðrar tegundir
sem mikilvægar eru fyrir smábáta eru ýsa, steinbítur, ufsi, grásleppa og makríll.
Smábátar veiða um 23 prósent af öllum þorski sem veiðist á Íslandsmiðum.
Landssamband smábátaeigenda er þrýstiafl í íslenskum sjávarútvegi sem
lætur óneitanlega að sér kveða í hagsmunabaráttu sinni.




