Mastur (MSTR ehf.), nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegstækni, mun sýna á IceFish í september ásamt þrautreyndum sýnanda, Klaka, undir merkjum Micro.
Mastur starfar í sjávarútvegstækni og er stofnað í samstarfi við Micro. Elvar Stefánsson er framkvæmdastjóri fyrirtækisins en í stjórn þess sitja Magnús Guðmundsson, formaður, Gunnar Óli Sölvason og Silfá Huld Bjarmadóttir.
Mastur sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu, og byggir á grunni mikillar reynslu aðstandenda þess í íslenska sjávarútvegi í sölu- og markaðsmálum, verkfræði og rekstri.
Fyrirtækið hefur þegar hafið starfsemi og lokið afhendingu fyrstu pantana til viðskiptavina. Unnið er að frekari verkefnum og afhendingum á næstu misserum. Jafnframt er verið að byggja upp þjónustunet og styrkja tengsl við viðskiptavini og samstarfsaðila bæði innanlands og á alþjóðavettvangi.
„Langtímamarkmið okkar er að þróa og framleiða okkar eigin búnað og lausnir og færa út kvíarnar á nýjum mörkuðum,” segir Silfá Huld, „Framundan er spennandi ferðalag og við erum full tilhlökkunar að leggja upp í þá ferð, skref fyrir skref.”
Til að slást í hópinn með Klaka og Mastur og öðrum öflugum sýnendum á IceFish er einfaldast að hafa samband við okkur í gegnum netfangið sales@icefish.is.




