Norska fyrirtækið Brimer er eitt þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem munu sýna á IceFish í september nk., en það er leiðandi á Evrópumarkaði í framleiðslu búnaðar úr glertrefjastyrktu plasti (GRP) sem tærist ekki og er einstaklega endingargóður og sterkbyggður.
Brimer framleiðir m.a. geyma og síló, vatnstanka, bátaskrokka, hlífðar- og varnarvirki, upphækkaðar laugar og ker, vita og samsett segl. Þá má nefna hálflokaðar fiskeldiskvíar fyrir AquaFarm Equipment, en það fyrirtæki býður upp á nýstárlegar og sjálfbærar lausnir fyrir fiskeldi í lokuðum sjókerfum. Kvíarnar eru sniðnar að ítrustu kröfum AquaFarm Equipment varðandi heilbrigði eldisfisks, umhverfisáhrif og hagkvæmni í rekstri.
AquaFarm sameinar í vöruúrvali sínu háþróaða tækni og sjálfbær efni úr glertrefjastyrktu plasti. Lausnir fyrirtækisins draga verulega úr hættu á að eldisfiskar sleppi, og lágmarka hugsanleg neikvæð umhverfisáhrif af fiskeldi.
„Við erum mjög ánægð með að starfa á nýjan leik með Brimer og sameina krafta fyrirtækjanna í þessu metnaðarfulla verkefni okkar sem boðar framtíðina í sjókvíaeldi,“ segir Jarle Lønning, framkvæmdastjóri Aquafarm Equipment.
Hinar framsæknu lausnir Aquafarm fyrir sjókvíaeldi hafa þegar vakið athygli á alþjóðavísu. Forsvarsmenn Brimer finna fyrir sívaxandi eftirspurn eftir hálflokuðum fiskeldiskerfum á alþjóðlegum vettvangi, og er óhætt að segja að búnaður AquaFarm feli í sér mikilvægt skref í áttina að hreinni, skilvirkari og sjálfbærari framtíð í fiskeldi.
Brimer rekur verksmiðjur í hafnarbænum Kvamsøy í Noregi og borgunum Saldus og Liepaja í Lettlandi. Fyrirtækið hefur yfir að ráða hafnaraðstöðu fyrir djúprist skip, sem gerir því kleift að framleiða og setja saman gríðarstórar einingar í verksmiðjum sínum. Höfuðstöðvar Brimer eru staðsettar í bænum Ulsteinvik í Noregi, skammt suðvestur af Álasundi, en einnig rekur fyrirtækið skrifstofur í Sandvika og Gjøvik.
Fyrirtækið býr yfir mikilli fagþekkingu og víðtækri reynslu og leggur kapp á að takast á við og leysa farsællega nýjar áskoranir. Framleiðsluvörur Brimer eiga það sameiginlegt að hlífa, varðveita og tryggja öryggi búnaðar, varnings og eigna viðskiptavina fyrirtækisins, ásamt því að vera til hagsbóta fyrir umhverfið og samfélagið í heild.
Til að slást í hópinn með Brimer og öðrum öflugum sýnendum á IceFish í september, er þægilegast að senda teyminu okkar tölvupóst á netfangið sales@icefish.is




