
IceFish 2026 býður Øwre-Johnsen-samsteypuna kærlega velkomna.
Norska fyrirtækjasamsteypan Øwre-Johnsen sýnir á IceFish í fyrsta skipti sem ein heild
og sameinar allt vöruúrval sitt og sérþekkingu undir einu þaki sýningarhallarinnar.
Øwre-Johnsen hefur verið traustur birgir fyrir fiskveiðar og fiskeldi í Noregi í rúm 77 ár
og margar af stærstu útgerðum og fiskeldisstöðvum Noregs eru á meðal viðskiptavina
samsteypunnar, sem og heilu sveitarfélögin.
Samsteypan býður m.a. upp á endingargóðar rekstrarlausnir fyrir olíusíun, dælur og
loka, sjálfvirkni og mælitæki, eftirlit með vatnsgæðum og rafmagni, ásamt íhlutum fyrir
vélabúnað í sjávarútvegi.
Innan samsteypunnar er fyrirtækið Acrylicon, sem stendur í fararbroddi í þróun og
framleiðslu á endingargóðum gólf- og veggkerfum fyrir krefjandi umhverfi í fiskeldi, og
mun fyrirtækið bætast í hóp annarra fyrirtækja samsteypunnar á IceFish. Acrylicon
hefur starfað á norska markaðnum í næstum hálfa öld.
Vegg- og gólfkerfi Acrylicon eru gerð úr níðsterkri, efnaþolinni akrýl-blöndu, án
samskeyta og eru hönnuð til að uppfylla ströngustu hreinlætiskröfur. Viðskiptavinir
fyrirtækisins eru meðal annars fiskvinnslustöðvar, klakstöðvar, stöðvar með lokuð
hringrásarkerf og stærsta silungaeldisstöð heims á landi.
Fyrirtækin innan Øwre-Johnsen-samsteypunnar bjóða til samans upp á einstakan
heildarpakka fyrir fiskveiðar og fiskeldi, allt frá gólfum til tæknikerfa sem halda
framleiðslu fyrirtækja gangandi á skilvirkan og öruggan hátt. Hollusta Øwre-Johnsen við
nýtingu og þróun framsýnna lausna í framleiðslu sinni er ein meginástæða þess að
samsteypan hefur hlotið ítrekaðar viðurkenningar fyrir nýsköpun sína hjá Samtökum
norska iðnaðarins, og var bæði á þessu ári og því seinasta útnefnd af Siemens sem
„Snjallasta iðnfyrirtæki Noregs“.
Það markar óneitanlega tímamót þegar Øwre-Johnsen stígur nú fram sem einn
sameinaður hópur öflugra fyrirtækja á vettvangi IceFish 2026, og eru forsvarsmenn
samsteypunnar fullir tilhlökkunar að bjóða íslenska sem erlenda gesti velkomna á bás
sinn í september nk.
Øwre-Johnsen-samsteypan verður á sýningarbás H31 í hinni nýju Miðstöð fiskeldis
á IceFish 2026.




