
Alda Safety mun sýna á IceFish í bás P38.
Íslenska fyrirtækið Alda Safety býður upp á stafrænt öryggisstjórnunarkerfi, appið
Alda, sem gjörbyltir öryggismálum fyrir sjófarendur. Alda var þróað í samstarfi við
íslenska sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki.
Alda nútímavæðir öryggi á sjó með því að stafræna og einfalda öryggisvenjur og
tryggja að farið sé að alþjóðlegum stöðlum. Hægt er að nota Öldu bæði í farsímum
og tölvum og með því er stjórnun öryggismálanna bókstaflega sett í hendur sjómanna
í gegnum snjallsíma þeirra. Appið gerir þeim kleift að taka þátt í og taka ábyrgð á
öryggisferlum hvenær sem er og hvar sem þeir eru staddir á hafi úti. Þetta er praktískt
og aðgengileg leið til að efla öryggisþjálfun, reglubundið öryggiseftirlit og öryggisvitund
um borð í bátum og skipum. Með notkun Öldu geta sjófarendur og útgerðir samræmt
öryggisreglur og eftirfylgni öryggismála um borð, aukið öryggi áhafna og dregið
verulega úr slysahættu.
Alda Öryggi og Slysavarnafélagið Landsbjörg eru nú í samstarfi varðandi kynningu á
Öggu-appinu sem er frítt fyrir smábátasjómenn um allt land. Markmið samstarfsins
er að auka öryggi smábátasjómanna með einföldum og aðgengilegum lausnum sem
styðja við örugga sjósókn.
Agga-appið er sérstaklega hannað með þarfir smábátasjómanna í huga og nútímavæðir,
auðveldar og einfaldar allt utanumhald öryggismála smábáta. Í appinu er meðal annars
hægt að skrá úttektir á búnaðinum um borð, framkvæma hættumat og nálgast ýmsa
fræðslu um björgunar- og öryggismál.
Nú þegar strandveiðitímabilið er í fullum gangi er Landsbjörg að leggja áherslu á
öryggismál smábátasjómanna, og kynna þar m.a. Öggu-appið sem hluta af fræðslu og
markaðssetningu á netinu og í sjónvarpi.
„Við hjá Öldu Öryggi erum mjög stolt af þessu samstarfi við Landsbjörg, en
sameiginlegt markmið okkar er að efla öryggismenningu á sjó og gera sjómönnum
kleift að nýta einfaldar lausnir sem geta skipt sköpum þegar á reynir. Með aukinni
notkun Öggu-appsins skapast mikil tækifæri til að draga úr áhættu og efla öryggi
þeirra sem sækja sjóinn,” segja forsvarsmenn Öldu.
Frekari upplýsingar um Ögguna má fá á www.agga.is og um kynningarátak Landsbjargar
á hlekknum https://www.landsbjorg.is/smabatar
Til að sýna á IceFish hafið samband við sales@icefish.is.




