
Fyrirtækið KJ-Hydraulic hefur nú bæst í sístækkandi hóp öflugra sýnenda í
færeyska skálanum á IceFish í ár, sem haldin verður 22.-24. september nk.
Fyrirtækið sérhæfir sig í vökvakerfum og vélum, ásamt því að útvega og þjónusta
vél- og tækjabúnað fyrir fiskveiðar og fiskeldi. KJ-Hydraulic er eitt stærsta fyrirtæki
á sviði tækja- og vélabúnaðar í Færeyjum og veitir einnig víðtæka þjónustu á
alþjóðamarkaði, þar á meðal á Íslandi, í Skotlandi, á Hjaltlandseyjum, í Danmörku
og í Noregi. KJ-Hydraulic hefur verið ötull birgðasali fyrir færeyska fiskiskipaflotann í
nokkur ár.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Kambsdal á Austurey, næststærstu eyju Færeyja, en
einnig starfrækir það útibú í Þórshöfn, Ljósá og Fuglafirði, og á systurfyrirtæki í
Danmörku sem nefnist KJ Supply.
KJ-Hydraulic er í fararbroddi í fiskeldisbúnaði og þjónustu á sínu sviði, og útvegar
tvíbytnur, eldiskvíar, straumrofa, sláturker og þjónustu fyrir klakstöðvar.
Fyrirtækið undirritaði nýlega samning við Bakkafrost um smíði á nýrri flatbytnu,
sem mun auka rekstrargetu Bakkafrosts í fiskeldisgeiranum. Skipið er 66. flatbytnan
sem KJ-Hydraulic smíðar og 36. flatbytnan sem smíðuð er fyrir Bakkafrost, en þær eru
fjölbreyttar að gerð.
„Þróunin í færeyska fiskeldisgeiranum hefur verið jákvæð í gegnum árin og vöxturinn
góður, sem hefur leitt til aukinnar eftirspurnar eftir stærri þjónustubátum fyrir
sjóeldisstöðvar,” segir Viggo Johannesen, framkvæmdastjóri KJ-Hydraulic. „Þörfin fyrir
stærra þilfarrými og stærri þilfarskrana þýðir að við verðum einnig að útvega stærri
flatbytnur, og er stærsta gerðin okkar nú 20×9 metrar.“




