... að sögn stjórnenda lettneska fyrirtækisins Peruza, sem sýnir framleiðsluvörur sínar á IceFish í haust. Peruza sérhæfir sig í verkfræðilegri hönnun og framleiðslu á sjálfvirkum, vélrænum og tilbúnum lausnum fyrir matvælaiðnað, einkum vinnslu sjávarfangs.
Fyrirtækið býr yfir rúmlega þrjátíu ára reynslu af því að finna og greina flöskuhálsa og óhagkvæmar aðferðir í framleiðsluferlum, og nýtir síðan þá þekkingu til að þróa besta hugsanlega búnaðinn til að leysa viðkomandi vandamál.
Peruza býr til fullkomlega sérsniðnar vélar og hugbúnað til að auka gæði og afköst. Framleiðsluvörur fyrirtækisins eru hraðvirkar, áreiðanlegar og skilvirkar og notaðar við matvælavinnslu um heim allan.
Kjarnahæfni fyrirtækisins er vinnsla smærri uppsjávarfiska, allt frá því að fiskurinn er veiddur þangað til að hann mætir í kæliborð verslana; ferli sem felur í sér móttöku, vinnslu, niðursuðu og pökkun. Þannig hefur orðið til innan fyrirtækisins ómæld þekking og geta til að henda reiður á hverjum einasta smáfiski í vinnsluferlinu frá upphafi til enda. Peruza hefur nú nýtt þá kunnáttu til að hanna búnað fyrir árangursríka vinnslu stærri nytjafisktegunda, og leggur áherslu á rekjanleika og ábyrga vinnslu afurðanna.
Stjórnendur Peruza horfa stöðugt fram á veginn, með þá sannfæringu að leiðarljósi að alltaf megi betrumbæta fyrirliggjandi tækni. Fyrirtækið leggur því mikla fjármuni í rannsóknir og vöruþróun.
„Framtíð matvælavinnslu felst í réttu blöndunni af mannlegu vinnuafli og vélrænni nákvæmni,” segja stjórnendur Peruza. Í samræmi við þá framtíðarsýn rannsaka sérfræðingar fyrirtækisins nú gaumgæfilega gervigreindartengd sjónkerfi í vélbúnaði, tækni sem á að tryggja bætt gæðaeftirlit í vinnslu matvæla og aukin gæði vörunnar.




