Allt frá upphafi hefur IceFish-sýninginn verið frábær vettvangur til að kynna og sýna ný skip, búnað, þjónustu og ótal margt fleira, og okkur er sönn ánægja að bjóða hjartanlega velkomna þrjá nýja sýnendur, Fageberg, Molear og Protec.
Danska fyrirtækið Fagerberg er nú búið að hasla sér völl á Íslandi. Fyrirtækið býður upp á tæknilega ráðgjöf og verkfræðiþjónustu á ýmsum sviðum, þar á meðal varðandi birgðakerfi og iðnaðarferla. Reksturinn hérlendis nýtur góðs af víðfeðmu alþjóðaneti Fagerbergs, sem tryggir að allar lausnir séu bæði hátæknilegar og af nýjustu gerð, samhliða því að vera aðlagaðar að krefjandi íslenskum aðstæðum.
Norska fyrirtækið Moleaer býður upp á heillandi nanóbólutækni. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í slíkri tækni og þróað hana í rúman áratug, og á þeim tíma nýtt hana í fjölmörg verkefni og framkvæmdir. Það er rækilega stutt af stærsta uppsetta nanóbólu-kerfi í heiminum og hefur á boðstólum lausnir sem skila áreiðanlegum, árangursríkum og þrautreyndum niðurstöðum í m.a. fiskeldisstöðvum, yfirborðsvatni og endurheimtarkerfum náttúruauðlinda. Uppsetningar Moleaer eru nú orðnar yfir 4.000 talsins í 55 löndum.
Íslenska fyrirtækið Protec býður upp á heildarlausnir í byggingariðnaði – allt frá ráðgjöf og hönnun, samskiptum við yfirvöld og innflutningi, til verkefnastjórnunar og afhendingar tilbúins húsnæðis. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi á byggingum og byggingarvörum, svo sem stálgrindur, stálgrindarahús, límtré, límtréshús og krosslímdar einingar. Protec býður upp á bæði einstakar vörur og heildarpakka.
Öll þessi þrjú fyrirtæki njóta stuðnings umfangsmikilla markaðsherferða IceFish, bæði á Íslandi og á alþjóðlegum vettvangi. Þau eru nú einnig hluti af gagnvirkri vefsíðu IceFish, sem gerir þeim kleift að eiga víðtæk samskipti við gesti og aðra sýnendur.
Slástu í hópinn með þessum spennandi fyrirtækjum og öðrum þeim aðilum sem eru að sýna á IceFish í fyrsta skipti, með því að hafa senda okkur póst á netfangið: ttattum@mercatormedia.com



