
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnan (IceFish) býður upp á spennandi nýjung á sýningunni sem haldin verður í september á næsta ári. Sérstakt sýningarsvæði, Fiskeldismiðstöðin, verður sett upp, helgað áhugaverðustu nýjungum í hinum ört vaxandi fiskeldisgeira.
Fiskeldismiðstöðin mun sameina fyrirtæki sem bjóða upp á tækjabúnað, hátæknilausnir, gervigreindarlausnir, fiskifóður, umhverfistækni og lausnir á sviði heilbrigðismála og velferðar fyrir fiskana. Þetta nýja rými hefur nú þegar vakið mikinn áhuga sýnenda sem vilja tengjast betur bæði innlendum og erlendum gestum IceFish, þar á meðal stjórnendum klakstöðva og framleiðslustöðva í fiskeldi, fjárfestum, leiðtogum í tæknimálum og þeim sem móta opinbera stefnu í fiskeldi í heiminum.
Fiskeldismiðstöðin mun einnig þjóna sem samkomuvettvangur fyrir fagfólk í fiskeldi og efla þannig samstarf innan geirans. Fólk deilir þar þekkingu sinni og kunnáttu á sviði rekstrar og starfsemi, ásamt því að ræða stefnumörkun sem mótar þróun greinarinnar til framtíðar.
IceFish 2026 býður ennfremur upp á víðtæka og fjölbreytta ráðstefnudagskrá, þar á meðal nýja fiskeldisráðstefnu á fyrsta degi sýningarinnar. Um er að ræða viðburð sem laðar að sér öflugan hóp fyrirlesara og fulltrúa frá öllum heimshornum og veitir innsýn í nýja þróun, sjálfbærni og tækniframfarir í fiskeldi.
Andrew Webster, framkvæmdastjóri IceFish:
„IceFish er elsta og stærsta starfandi sjávarútvegssýning á Íslandi og við störfum einarðlega að áframhaldandi eflingu hennar og þróun. Fiskeldismiðstöðin nýja er ánægjuleg og þörf viðbót á IceFish 2026 og endurspeglar ásamt ráðstefnunni nýjungar, nýsköpun, stöðu og vöxt fiskeldisgerans á Íslandi og alþjóðavettvangi.”
Samkvæmt Hagstofu Íslands var framleiðsla fiskeldisafurða á Íslandi árið 2024 næstum 54.800 tonn, sem er 10% aukning frá árinu 2023. Útflutningsverðmæti fiskeldis á Íslandi nam 54 milljörðum króna árið 2024, sem er 17% aukning á milli ára.
Image credit: Ekrem Canli




