
Hin langlífa og vinsæla ráðstefna snýr aftur á IceFish 2026.
Dagskrá hinnar væntanlegu 100% Fish for Profit-ráðstefnu endurspeglar vel áhersluna sem þar verður lögð á spennandi nýjungar og samstarfsverkefni sem skila munu hagstæðum og arðbærum árangri fyrir sjávarútvegs- og fiskeldisgeirann.
Ráðstefnan verður haldin samhliða IceFish 2026 á Íslandi og stendur yfir dagana 23.–24. september. Þar munu fremstu sérfræðingar á sínu sviði taka þátt í fróðlegum og hugmyndaríkum pallborðsumræðum um alþjóðlega þróun og stefnumótun á vettvangi sjávarútvegs og fiskeldis.
Þeir þátttakendur sem bóka sæti fyrir 3. ágúst nk. fá afslátt af venjulegu verði.
Pallborðsumræðurnar hefjast þannig á dagskrárlið sem kallast Global Partnerships for a Global Seafood Challenge, en þar fjalla Alexandra Leeper, framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans, og Donna Fordyce, framkvæmdastjóri Skoska sjávarklasans, um nýjustu og markverðustu tíðindin af starfsemi þeirra.
Næstu tveir dagskrárliðir fjalla um þau hlutverk sem annars vegar nýsköpun, sérstaklega nýkynslóðartækni á borð við gervigreind, skammtatölvur og háþróuð tæknikerfi, og hins vegar alþjóðlegt samstarf, leika í því að efla viðskipti í sjávarútvegi og fiskeldi og auka arðsemi þeirra greina.
Fyrri liðurinn kallast Enabling Technologies for Full Utilisation og varpar ljósi á þá tækniþróun sem gera mun fullnýtingu sjávarafurða arðbæra, þar á meðal háþróuð vinnslukerfi, nýjungar í kælikeðjum, gervigreind, sjálfvirkni og nýting snjalltækni við framleiðsluna.
Á meðal fyrirlesara sem gera þessum málefnum skil má nefna Runar Gjerp Solstad, yfirmann vísinda hjá sjávarlíffræðideild Nofima, Nils Rabe, sölustjóra alþjóðasviðs sjávarafurða hjá Baader, Andrew Gillespie-McLean, sölustjóra tæknibúnaðar hjá Ace Aquatic, og Michaela Lindström, framkvæmdastjóra og einn stofnenda finnska matvælatæknifyrirtækisins Hailia Nordic Oy.
Seinni liðurinn kallast Blueprints For Success: What is Transferable to Other Companies and Ecosystems, en þar verða í forgrunni reynslusögur og raundæmi frá fyrirtækjum sem hafa innleitt framsæknar og árangursríkar aðferðir við að fullnýta hráefni í sjávarútvegi.
Sérstök áhersla er lögð á hagnýta þekkingu, yfirfæranleg rekstrarlíkön og algeng mistök sem ber að varast, í þeim tilgangi að miðla gestum skýrum og gagnlegum upplýsingum um hvernig aðlaga má aðferðir að mismunandi tegundum sjávarafurða, svæðum og umfangi starfseminnar.
Á meðal alþjóðlegra fyrirlesara í þessum lið má nefna að Alexandra Leeper kynnir reynslu Íslenska sjávarklasans í þessum málum, Kristian S. Ottesen, framkvæmdastjóri hjá Royal Greenland segir frá helstu áherslum fyrirtækisins á þessu sviði, og Ayella Spaapen, stjórnandi samstarfsverkefnis hollenska háskólans Aeres University of Applied Sciences, atvinnulífsins þar í landi og stjórnvalda, segir frá lykilþáttum þess og niðurstöðum. Umrætt verkefni kallast á ensku Nose of the Salmon, sem fengið er úr hollensku hugtaki sem þýðir„það besta af því besta“, og miðar að því að breyta fiskúrgangi á svæðinu í verðmætar afurðir.
David Naftzger, framkvæmdastjóri bandarísku samtakanna The Great Lakes St. Lawrence Governors & Premiers mun einnig taka þátt í þessum dagskrárlið. Samtökin eru samstarfsvettvangur æðstu stjórnenda fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækja í fylkjunum Illinois, Indiana, Michigan, Minnesota, New York, Ohio, Ontario, Pennsylvania, Québec og Wisconsin. Samtökin hafa sett á laggirnar eigið átak á sviði fullnýtingar sjávarafurða, en það ber yfirskriftina 100% Great Lakes Fish.
Þú getur fundið frekari upplýsingar um ráðstefnuna og bókað þér sæti á henni hér.



