
Hin vinsæla ráðstefnudagskrá IceFish mun tvöfaldast að stærð á sýningunni í september 2026 nk., auk þess að ráðstefnurnar á næsta ári munu fara fram samhliða sjálfri sýningunni í Fífunni/Smáranum í Kópavogi.
Ráðstefnurnar verða tvær, annars vegar 100% Fish for Profit, sem áður kallaðist Fish Waste for Profit, og hins vegar ný og spennandi ráðstefna sem nefnist Aquaculture, Driving Sustainable Growth. Þar verður fjallað á fjölbreyttan og fróðlegan hátt um hvernig fiskeldið er drifkraftur í sjálfbærum vexti í sjávarútvegi, og fer sú ráðstefna fram á fyrsta degi IceFish. Ráðstefnan 100% Fish for Profit hefst síðan strax á öðrum degi sýningarinnar, með þéttri og áhugaverðri dagskrá sem teygir sig yfir á þriðja sýningardaginn; spannar semsagt einn og hálfan dag alls.
Skipuleggjendur IceFish-ráðstefnanna starfa sem fyrr í nánu og góðu samstarfi við teymi Íslenska sjávarklasans, þar á meðal varðandi efnisval og fundarstjórn.
Ráðstefnan 100% Fish for Profit fjallar um hvernig fullnýta megi sjávarfang til að hámarka verðmæti þess, með því að umbreyta fiskinum í heild sinni í dýrmætar afurðir fyrir fjölbreytta markaði heimsins. Ráðstefnan leiðir saman eigendur og forstjóra fyrirtækja í sjávarútvegi og aðra leiðtoga vítt og breitt úr faginu, þar á meðal fiskeldi og vinnslu, ásamt ýmsum samstarfsaðilum í aðfangakeðjunni. Þannig verður í boði glæsileg, þétt og kjarnmikil dagskrá sem gefur þátttakendum einstakt tækifæri til að kynnast helstu nýjungum, afla sér innsýnar í greinina og tengjast lykilhagsmunaaðilum.
Ráðstefnan Aquaculture – Driving Sustainable Growth mun leiða saman fremstu rekstraraðila í fiskeldi á Íslandi, frumkvöðla og stefnumótendur ásamt alþjóðlegum sérfræðingum sem í sameiningu móta framtíð greinarinnar. Ráðstefnan stendur í einn dag og mun varpa ljósi á óviðjafnanlegan styrkleika Íslands sem alþjóðlegrar miðstöðvar fyrir fiskeldi. Jafnframt verður fjallað ítarlega um tækniþróun og tækninýjungar, sjálfbærar framleiðsluaðferðir og stefnumarkandi lausnir sem veita sýn til framtíðar greinarinnar; lausnir sem gera ábyrgan og sjálfbæran vöxt mögulegan, bæði innanlands og á alþjóðlegum mörkuðum.
Þátttakendur geta skráð sig á aðra hvora ráðstefnuna eða sótt þær báðar að vild. Auk víðtækra möguleika á fræðslu og tengslamyndun, fylgir ókeypis og auðveldur aðgangur að öllum þremur sýningardögum IceFish 2026.
Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin & ráðstefnurnar, IceFish, er rótgróinn viðburður sem nýtur mikillar virðingar á sínu sviði um allan heim. Hún var fyrst haldin árið 1984 og hefur á þeim rúmum fjörutíu árum sem liðin eru síðan þá sífellt vaxið og eflst að gæðum og umfangi. IceFish býður upp á traustan og þrautreyndan vettvang til að byggja upp viðskipta- og tengslanet og kynnast og kynna nýjustu þróun í sjávarútvegi, virðisaukandi vinnslu, vinnslutækni, sem og í hinum ört vaxandi fiskeldisgeira.
Við bryddum upp á þeirri nýjung að bjóða fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum sem vilja koma á framfæri áhugaverðu efni sem fellur að umfjöllunarefni ráðstefnanna, að senda okkur efniságrip til að sækja um aðild. Sérfræðiteymið okkar mun yfirfara vandlega og meta hvert ágrip og umsækjanda með mögulega aðild að ráðstefnunum í huga. Nánari upplýsingar má finna á vef IceFish-ráðstefnanna, sjá hér: Conferences.




