Arion banki og Evrópski fjárfestingarbankinn (EIB) hafa gert samning sem felur í sér 15 milljarða króna lán til Arion banka sem nýtt verður til fjármögnunar umhverfisvænna og sjálfbærra verkefna í sjávarútvegi á Íslandi, Grænlandi og í Færeyjum.
Í krafti samningsins veitir Arion banki langtímalán til smárra og meðalstórra fyrirtækja sem starfa í sjávarútvegi og tengdum greinum; fyrirtækja sem stunda sjálfbærar fiskveiðar, vinnslu sjávarafurða og fisk- og þörungarækt, að því er segir í tilkynningu.
„Sjávarútvegur er einn hornsteina íslensks efnahagslífs og gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki á norðurslóðum. Sífellt hertari kröfur eru gerðar til greinarinnar um fjárfestingar í nýrri tækni, umhverfisvænni starfshætti og aukinn styrk til að mæta áskorunum framtíðarinnar. Samstarf EIB og Arion banka miðar að því að hjálpa fyrirtækjum að fullnægja þessum hertu kröfum með sjálfbærum hætti og skjóta þannig styrkari stoðum undir það sem stundum hefur verið nefnt „bláa hagkerfið“,” segir í tilkynningunni.
Samkvæmt samningnum, sem er sá fyrsti sinnar tegundar sem EIB gerir á norðurslóðum, verður horft til verkefna sem koma til framkvæmda á árunum 2026 til 2029.
Fram kemur að samningurinn styrkir markmið Evrópusambandsins um að efla bláa hagkerfið með ábyrgri nýtingu auðlinda sjávar og tryggja þannig heilbrigð vistkerfi í hafinu.
„Fjármögnunin styður fyrirtæki sem byggja afkomu sína á hafinu á sama tíma og hún stuðlar að ábyrgri stjórnun sjávarauðlinda,“ segir Karl Nehammer, framkvæmdastjóri hjá EIB (e. Vice-President of the EIB), í tilkynningunni. „Með samstarfinu við Arion banka styðjum við sjálfbærar fjárfestingar þar sem þær skipta mestu máli, hjá fyrirtækjum í nærsamfélaginu.“
Arion banki hefur um árabil lagt áherslu á þjónustu við sjávarútveg og nú í seinni tíð við fyrirtæki á norðurslóðum. Með því að nýta krafta Arion banka nær EIB að auka aðgengi smærri fyrirtækja að langtímafjármögnun sem nýtast mun í sjálfbæran vöxt.
„Í áratugi hefur Arion verið traustur bakhjarl íslensks sjávarútvegs. Bankinn hefur fjármagnað íslensk sjávarútvegsfyrirtæki og á síðari árum einnig fyrirtæki á Norðurslóðum. Að auki hefur Arion síðasta áratuginn verið leiðandi í fjármögnun fiskeldis á Íslandi og hjálpað til við að byggja upp blómlega atvinnugrein sem er orðin mikilvæg stoð í íslensku efnahagslífi,“ segir Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, í tilkynningunni.
„Við sjáum mikil tækifæri í áframhaldandi uppbyggingu sjálfbærs sjávarútvegs á Íslandi og á Norðurslóðum og samningurinn við EIB styrkir okkur á þeirri vegferð.“
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, Gemma Feliciani, framkvæmdastjóri hjá EIB, Clara Ganslandt, sendiherra Evrópusambandsins á Íslandi, og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Ljósmynd/Aðsend




