Skoska fyrirtækið Gael Force Group, sem er með höfuðstöðvar í borginni Inverness, hefur fengið fjármögnun upp á sjö tölustafi frá breska bankanum HSBC. Fjármögnunin mun styðja við þróun og kynningu á nýstárlegu hálflokuðu sjókvíakerfi (SCCS), og önnur verkefni sem miða að auknum vexti fyrirtækisins.
SCCS stýrir umhverfi eldisfisks í gegnum lokað kerfi sem safnar úrgangi og dælir inn með öruggum hætti hreinsuðu vatni af djúpsævi, sem verndar fiskinn og nærliggjandi sjávarlíf frá því að komast í snertingu við saurmengun. Úrganginum er síðan hægt að breyta í áburð, sem dregur úr umhverfisáhrifum fiskeldis.
Gael Force Group er hvort tveggja birgir og framleiðandi fiskeldisbúnaðar og getur hagrætt framleiðsluferlinu til að tryggja fiskeldisstöðvum lokaafurðir sínar með lægri tilkostnaði.
„Með því að útvega sér þessa fjármögnun getur Gael Force Group ráðist í verkefni og sett á markað mikið úrval af vörum sem koma viðskiptavinum okkar um allan heim til góða,” segir
Stewart Graham, stofnandi og framkvæmdastjóri Gael Force Group. „Fiskeldi er ein helsta undirstaðan í matvælaútflutningi Bretlands og því er mikilvægt fyrir okkur að vinna með banka sem skilur viðskiptamarkmið okkar og getur stutt vöxt fyrirtækisins með sérsniðinni nálgun.“
Neal Tully, forstöðumaður fyrirtækjatengsla hjá HSBC UK, segir mikla ánægju ríkja í bankanum með samstarfið við Gael Force Group og að geta stutt þróun fyrirtækisins á sjálfbærum fiskeldiskerfum. „HSBC UK hefur veitt fiskeldisgeiranum liðveislu um langt skeið og það gleður okkur að geta útvegað Gael Force Group þá fjármögnun sem fyrirtækið þarf til að ná næsta áfanga vaxtar og þróunar.“
Gael Force Group mun sýna á bás G54 á IceFish 2026.
Til að sýna á IceFish hafið samband við teymið okkar í gegnum netfangið sales@icefish.is.




