
Umbúðaframleiðandinn öflugi Samhentir-Kassagerð, sem sýnir á IceFish 2026, hefur nú hlotið vottun samkvæmt alþjóðlega BRCGS staðlinum fyrir innflutning og heildsölufyrirtæki með umbúðir, þar á meðal matvælaumbúðir.
Um er að ræða staðalinn BRCGS Storage and Distribution, þar sem fyrirtækið hlaut A-einkunn, sem er hæsta mögulega niðurstaða.
Vottunin staðfestir að ferlar Samhentra uppfylla strangar kröfur um gæði, öryggi og rekjanleika. Viðskiptavinir fyrirtækisins geta því treyst því að fá ávallt stöðug og örugg gæði frá vottuðum birgjum í fremstu röð á heimsvísu.
Rekstur Samhentra verður héðan í frá tekinn út árlega af óháðum vottunaraðila.
Kröfur staðalsins byggja á samfelldu og kerfisbundnu gæðastarfi allt árið umkring og starfsfólk Samhentra leggur sig stöðugt fram við að gera betur í dag en í gær
Samhentir hafa átt langt og gott samstarf við IceFish og munu sýna á sýningarbás F20 á IceFish 2026 í september nk.
Til að slást í hópinn með Samhentum-Kassagerð og öðrum öflugum sýningaraðilum á IceFish 2026 skaltu endilega hafa samband við ttattum@mercatormedia.com.




