
Við bjóðum alþjóðafyrirtækið DNV hjartanlega velkomið sem fyrr í hóp reyndra sýnenda á IceFish í september nk. DNV er leiðandi fyrirtæki á alþjóðavísu í flokkunum og vottunum í skipaútgerð og skipasmíði, ásamt því að vinna kappsamlega fyrir fiskeldisiðnaðinn og í þágu heilbrigðs sjávar.
Fyrirtækið sér einnig um vottanir og úttektir á gæðakerfum, svo fátt eitt sé nefnt. DNV Íslandi er sjálfstætt fyrirtæki með sérhæfingu á sviði öryggis- og áhættustjórnunar.
Hið alþjóðlega fyrirtæki DNV hefur á sínum snærum yfir 500 sérfræðinga í heilbrigði fiska, líffræðilegum fjölbreytileika, innviðum og stafrænni nýsköpun. Þessi stóri og öflugi hópur vinnur ötullega að því að styðja við sjálfbæran vöxt í sjávarútvegi og fiskeldi, samtímis því að vernda vistkerfi sjávar. DNV veitir þjónustu sem tryggir bestu starfsvenjur, reglufylgni og rekstrarþol í allri virðiskeðjunni.
DNV styður eigendur fyrirtækja, rekstraraðila, framleiðendur, yfirvöld og fjárfesta við að uppfylla kröfur neytenda og samfélagsins um öruggan, sjálfbæran sjávarútveg og heilbrigð höf. Þetta gerir fyrirtækið m.a. með vottunum, flokkunum og áhættustjórnun, en einnig með háþróuðum greiningarferlum og stafrænum lausnum.
Í þessum stóra hópi sérfræðinga má nefna dýralækna, líffræðinga, verkfræðinga og haffræðinga, sem búa allir yfir djúpstæðri tæknilegri kunnáttu og þekkingu á alþjóðlegum stöðlum. Í sameiningu og með samstilltum verkferlum hjálpa þessir starfsmenn DNV viðskiptavinum fyrirtækisins að kljást við alls kyns flækjur og erfiðleika sem upp geta komið, og auðvelda þeim að byggja upp traust á starfsemi sinni á alþjóðlegum vettvangi.




