
Paw Petersen, forstjóri OxyGuard International, ræðir gervigreind í fiskeldi á
ráðstefnu IceFish í september.
OxyGuard er danskt tæknifyrirtæki, stofnað árið 1987, og sérhæfði sig upphaf-
lega í hönnun og framleiðslu á búnaði til að mæla og vakta vatnsgæði. Paw
Petersen hefur varið meira en 25 árum ævi sinnar í þróun tækni sem styður við
gagnadrifna fiskeldisframleiðslu sem er sjálfbærari en sú hefðbundna. Megin-
áhersla OxyGuard er að búa til áreiðanlegar lausnir sem gera fiskeldisfyrirtækjum
kleift að öðlast gleggri skilning á framleiðslu sinni og stýra henni og
framleiðsluumhverfinu betur fyrir vikið.
OxyGuard hefur um árabil verið virkur þátttakandi í sérvöldum þróunarverkefnum í
rannsóknarskyni, í nánu samstarfi við vísindastofnanir og samstarfsaðila í greininni.
Paw mun lýsa einu slíku samstarfi fyrirtækisins við DTU, Tækniháskóla Danmerkur,
í erindi sínu á ráðstefnunni Aquaculture – Driving Sustainable Growth, sem haldin
er á opnunardegi IceFish þann 22. september nk.
Um er að ræða doktorsverkefni sem snýst um að kanna hvort hljóðvöktun ásamt
gervigreind geti hjálpað til við að skilja betur fæðuhegðun fiska. Talið er að hægt sé
með greiningu á hljóðmynstri að skilja hvenær átvirkni fisksins er mest. Slík greining
gæti auðveldar fiskeldisstöðvum og öðrum að forðast offóðrun, draga úr
kostnaðarsamri fóðursóun og bæta bæði vatnsgæði og velferð fisksins.
„Ég hlakka virkilega til IceFish, bæði sýningarinnar og ráðstefnunnar, að fá þar
tækifæri til að deila með þátttakendum og gestum þeim aðferðum sem við hjá
OxyGuard beitum til að vinna með gögnin við raunverulegar aðstæður,” segir Paw
Petersen.
„Fyrir mér snýst þetta ekki fyrst og fremst um tæknina sem slíka, heldur hvernig
við getum nýtt hana til að gera daglegan rekstur fiskeldisstöðva auðveldari og
áreiðanlegri. Þegar við færum okkur frá eftirliti með atferli fisksins yfir í að nota
eftirlitsgögnin til ákvarðanatöku, eykst geta fiskeldisstöðva til að stýra rekstrinum,
óvissuþáttum fækkar og til verður traustari grundvöllur fyrir bæði aukin afköst og
sjálfbærni.“
Þátttakendur ráðstefnunnar munu fá innsýn í hvernig þessi nýjung á sviði gervi-
greindar starfar, og hvernig skrefið frá óvirku eftirliti yfir í virka stjórnun þjónar
mikilvægum tilgangi við að skapa sjálfbærara, skilvirkara og þrautseigara fiskeldi.
IceFish-sýningin í september nk. er sú fimmtánda í röðinni og samhliða henni verða
haldnar tvær einstaklega áhugaverðar ráðstefnur, Aquaculture – Driving Sustainable
Growth, sem stendur yfir einn dag, og 100% Fish for Profit, sem stendur í tvo daga.
Báðar veita þær þátttakendum innsýn í þróun, tækni og tækifæri sem móta framtíðina
í þessum geirum sjávarútvegs.
Fyrir frekari upplýsingar og til að bóka þátttakendapassa, heimsækið vefsíðu
Aquaculture - Driving Sustainable Growth.




